Um þessar mundir er Landvernd að kynna Bláfánann fyrir rekstraraðilum smábátahafna og baðstranda og er frestur til að sækja um og/eða endurnýja aðild fyrir árið 2008 til 21. febrúar nk.

Umsóknareyðublaðið fyrir smábátahafnir er að finna hér. Umsóknareyðublaðið fyrir baðstrendur er að finna hér. Umsækjendur geta einnig haft samband við skrifstofu Landverndar og beðið um að fá umsóknareyðublað sent í pósti eða tölvupósti. Starfsmenn Landverndar og stýrihópur Bláfánans munu eftir atvikum veita umsækjendum aðstoð við gerð umsóknar.
Allar frekari upplýsingar veitir skrifstofa Landverndar. Þess má geta að þeir rekstraraðilar smábátahafna sem sýnt geta fram á að uppfylla skilyrði Bláfánans að verulegu, en ekki öllu leyti, og eru tilbúir til að lýsa því yfir að áformað sé að gera frekari úrbætur, eiga þess kost að fá Bláfánaskírteini til vitnis um ágæta stöðu og góðan ásetning.

Sjá vef Landverndar, undirsíðu Bláfánans.
Hér á Grænum síðum er listi yfir alla þá aðila sem hafa Bláfána nú þegar
og hér yfir þá sem eru í ferli.

Birt:
26. janúar 2008
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Rétti tíminn til að sækja um Bláfánann“, Náttúran.is: 26. janúar 2008 URL: http://nature.is/d/2008/01/26/retti-timinn-til-ao-saekja-um-blafanann/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: