Fimmtudaginn 21. júní er þriðja ganga í röð gangna um „Græna trefilinn“. Skógræktarfélag Mosfellsbæjar hefur umsjón með þessari göngu.

Gamlir og nýrri skógarreitir upp með Varmá verða skoðaðir og einnig litið eftir breytingu á gróðurfari eftir að beit var hætt á svæðinu. Gengið verður frá hitaveituplaninu við Suður-Reyki. Ekið er eins og leið liggur eftir Vesturlandsvegi að hringtorgi (rétt hjá Krónunni og KFC), þar sem beygt er til hægri inn á Reykjaveg og ekið áfram eftir veginum þar til komið er á fyrrnefnt plan. Athugið að beygja til hægri við Reykjalundarveg, en aka ekki áfram upp að Reykjalundi.
Boðið verður upp á hressingu að göngu lokinni.

Skógargöngur á Græna treflinum verða öll fimmtudagskvöld í júní og júlí og hefjast göngurnar kl. 20:00 Göngurnar eru hluti af fræðslusamstarfi skógræktarfélaganna og Kaupþings.
Þetta eru léttar og þægilegar göngur í fallegu umhverfi. Göngurnar taka alls um tvo tíma og eru allir velkomnir.

Af vef Skógræktarfélags Íslands.

Birt:
20. júní 2007
Tilvitnun:
Skógræktarfélag Íslands „Gengið á Græna treflinum - Varmá og nágrenni“, Náttúran.is: 20. júní 2007 URL: http://nature.is/d/2007/06/20/gengi-grna-treflinum-varm-og-ngrenni/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 9. júlí 2007

Skilaboð: