Fyrir nokkrum vikum fékk Náttúran.is styrk frá Menntamálaráðuneytinu til að standa straum af kostnaði við að senda „Náttúruspil 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið“ í skóla landsins. Stokkarnir fóru í póst í dag svo allir grunn- og framhaldsskólar mega því búast við að fá stokkinn sinn með póstinum á mánudaginn eða í síðasta lagi á þriðjudaginn.

Náttúran.is vonast til að spilin ný tist vel í umhverfisfræðslu á öllum skólastigum en eins og stendur í bréfunum til skólanna þá eru umhverfismálin eitt heitasta málefni dagsins í dag og áhrif lofslagsbreytinga knýja okkur til að hugsa hlutina alveg upp á nýtt og fræðast um hvað við getum lagt til málanna og hvernig sé yfirleitt í pottinn búið. En skort hefur efni til að nota við kennslu í þessum stóra málaflokki, efni sem talar til allra aldurshópa á einfaldan og skemmtilegan hátt.

Strax við opnun vefsins fyrir tveimur árum komu fyrstu Náttúruspilin út en hafa verið uppfærð og endurprentuð síðan. Náttúran.is þróaði spilin til að kynna innihald vefsins en vefurinn getur síðan ný st sem viðbót til enn frekari umhverfisfræðslu eða þemavinnu í skólastarfinu almennt.

Hönnun: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir
Útgefandi: ©Náttúran er ehf. 2008
Prentun: Hjá GuðjónÓ vistvæn prentsmiðja
ISBN númer 9789979704416
Svansmerking prentað efni nr. 141 381 

Birt:
24. apríl 2009
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Náttúruspilin til allra skóla“, Náttúran.is: 24. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/24/natturuspilin-til-allra-skola/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: