Laugardaginn 5. desember verður jólamarkaður frá kl. 12:00-17:00 í Félagsgarði í Kjós. Á boðstólum verður ýmiskonar handverk og matvælaframleiðendur úr Kjósinni verða með margskonar góðgæti til sölu. Hægt er að byrja daginn á því að ná sér í alíslenskt jólatré á skógræktarsvæðinu við Fossá og fá sér svo kakó og vöfflu hjá kvenfélaginu í Félagsgarði auk þess að skoða það sem þar er í boði.

Jólakort til styrktar Lyngási
Sögumiðlun hefur framleitt jólakort sem verða til sölu á jólamarkaðnum. Allur ágóði af sölu þeirra rennur til Lyngáss, dagvistar fyrir fötluð börn og ungmenni, sem er hluti af Styrktarfélaginu Ás. Myndin á jólakortinu er búin til úr pappír, eggjabökkum, álfilmu af smjördollu og gömlu klæði.  Að auki verður Sögumiðlun með ýmsar bækur, geisladiska og fleira með þjóðlegu ívafi á boðstólum.

Um Lyngás:
Á Lyngási dvelja fötluðustu börnin hverju sinni. Á tímum sem þessum er mikilvægt að gleyma ekki þessum hóp sem þarf á öflugum málsvörum að halda. Það góða starf sem þarna fer fram skiptir sköpum í lífi þessara einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Við viljum leggja okkar að mörkum og um leið þakka fyrir þá frábæru þjónustu sem við fengum er sonur okkar dvaldi þarna í rúmt ár. Eins árs var hann varla farinn að geta setið uppréttur en ári síðar labbaði hann út af Lyngási og er nú í almennum leikskóla.
Pakki með 8 jólakortum og umslögum kostar 1000 krónur. Pantanir berist á gyda@sogumidlun.is.

Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á jólamarkaðinn en vilja engu að síður leggja þessu góða málefni lið geta pantað kort í gegnum tölvupóst gyda@sogumidlun.is og bætist þá við sendingarkostnaður.

Birt:
2. desember 2009
Tilvitnun:
Gyða S. Björnsdóttir „Jólamarkaður í Kjósinni“, Náttúran.is: 2. desember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/11/27/jolamarkaour-i-kjosinni/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 27. nóvember 2009
breytt: 2. desember 2009

Skilaboð: