Í fréttatilkynningu frá Berg Sigurðssyni framkvæmdastjóra Landverndar kemur fram að samtökin hafa sent umhverfisráðherra áskorun þar sem ráðherra er hvattur til þess að taka kæru Guðrúnar S. Gísladóttur til efnislegrar meðhöndlunar. Umhverfisráðherra er í sjálfsvald sett að túlka ákvæði stjórnsýslulaga um kæruaðild þröngt eða hvort rýmri túlkun, í anda Árósarsamningsins, eigi betur við í málinu.

Áður en lögum um mat á umhverfisáhrifum var breytt á liðnu ári hefði þessi efnistaka verið tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunnar, sbr. 2. viðauka áður gildandi laga. Þar með hefðu frjáls félagasamtök og almenningur haft til eðlilegan aðgang og aðkomu að málinu. Haft skal í huga að hér er um að ræða nám á bergtegund með hátt verndargildi á heimsvísu úr friðlandi og ætti því að túlka ákvæði um aðildarrétt kæranda, Guðrúnu S. Gísladóttur, í hag.
Sjá málsgögn úr kæru samtakanna „Hrafntinnuriddaranna“ og Guðrúnar Gísladóttur. Svar umhverfisráðherra. Sjá ítrekun kröfu Guðrúnar, frá Atla Gíslasyni.

 

Birt:
18. nóvember 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Landvernd sendir umhverfisráðherra áskorun - Hrafntinnumálið“, Náttúran.is: 18. nóvember 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/19/hrafntinnumalid/ [Skoðað:21. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. mars 2007
breytt: 11. maí 2007

Skilaboð: