Lýðheilsa og skipulag - fyrirlestraröð um skipulagsmál í Norræna húsinu
Nú er komið að lokadeginum í þriggja daga málþinginu “Lýðheilsa og skipulag” Síðustu tvo miðvikudaga voru flutt áhugaverð og fræðandi erindi sem gáfu af sér mjög skemmtilegar og lifandi umræður.
Forsaga málþingsins er að á HönnunarMarsi 2009 var haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur þriggja daga málþing sem bar sama heiti. Vegna fjölda áskorana var ákveðið að endurtaka leikinn.
Nú er komið að lokadeginum og að þessu sinni verða flutt 8 erindi.
Flytjendur í dag miðvikudaginn 28. apríl kl 17:00-19:30 eru :
- Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi - Græn samgöngustefna Grafarvogs
- Arnar Þór Jónsson arkitekt Skriðuklaustur - Leiðin að BREEAM vottun
- Kolbrún Þóra Oddsdóttir landslagsarkitekt - Má minnka loftmengun meðfram vegum?
- Magnús Jensson arkitekt - Dýrafjörður
- Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, B.Sc. líffræði og MPH nemi
- Egill Guðmundsson arkitekt - Umhverfisvæn byggð - skipulag og hönnun „hvert stefnum við“
- Kolbrún S. Jónsdóttir hjá Umhverfisstofnun - Landnotkun og sjálfbær þróun
- Árni Davíðsson frá Landssamtökum hjólreiðamanna - Hjólreiðar á Íslandi
Málþingið er haldið af Arkitektafélagið Íslands í samstarfi við Félag íslenskra landslagsarkitekta, Umhverfisráðuneytið og Norræna húsið.
Birt:
28. apríl 2010
Tilvitnun:
Arkitektafélag Íslands „Lýðheilsa og skipulag - fyrirlestraröð um skipulagsmál í Norræna húsinu“, Náttúran.is: 28. apríl 2010 URL: http://nature.is/d/2010/04/28/skipula/ [Skoðað:18. maí 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 1. maí 2010