Kallað eftir grænni skattlagningu
Umhverfismálanefnd breska þingsins sakar fjármálaráðuneytið um viðvarandi metnaðarleysi og skort á hugmyndaflugi þegar kemur að mengunarsköttum. Ráðuneytið ætti að líta í ríkari mæli til þeirra meðmæla sem koma fram í Stern-skýrslunna að því er kemur fram á vef BBC.
Sérstaklega er litið til flugferða í þessu samhengi. Nefndin hefur bent á að ráðlegt væri að flokka tegundir millilanda- og innanlandsfluga í mismunandi flokka eftir lengd þeirra og haga skattlagningu grænna skatta í samræmi við það.
Nefndin telur að Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, þurfi að setja umhverfismál á oddinn í næstu fjárlögum og miða að því að gera fólki auðveldara að gerast umhverfislega þenkjandi.
Birt:
6. mars 2008
Tilvitnun:
Viðar Þorsteinsson „Kallað eftir grænni skattlagningu“, Náttúran.is: 6. mars 2008 URL: http://nature.is/d/2008/03/06/kallao-eftir-graenni-skattlagningu/ [Skoðað:26. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.