Magma Energy laug ítrekað að okkur
Í framhaldi af blaðamannafundi um undirskriftarsöfnun á orkuaudlindir.is sem Björk og félagar hrintu úr vör í Norræna húsinu á á mánudaginn hefur Ross Beaty forstjóra Magma Energy Canada reynt að fá Björk til fylgilags við sig með því að bjóða henni persónulega að kaupa 25% hlut af Magma á kostnaðarverði. Sjá greinina „Björk segir forstjóra Magma reyna að kaupa sig með hlutabréfum“. Björk svaraði Ross Beaty fullum hálsi. Sjá greinina „You Totally Miss My Point“ og hann henni aftur á Grapevine í dag. Sjá „Letter to the Editor: The Grapevine“.
Í grein á Grapevine frá 21. maí sl. er lygavefur Ross Beaty afhjúpaður og vitnað í hans eigin orð í tímaröð. Greinin er á ensku en fólk er hvatt til að lesa greinina og mynda sér sína eigin skoðun á því hvort að orð Ross Beaty í dag skuli taka trúanleg. Sjá greinina: Magma Energy Lied To Us.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Magma Energy laug ítrekað að okkur“, Náttúran.is: 22. júlí 2010 URL: http://nature.is/d/2010/07/22/magma-energy-laug-itrekad-ad-okkur/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.