Í dag er íslenski safnadagurinn haldinn hátíðlegur vítt og breitt um landið. Söfn og önnur menningarsetur opna dyr sínar og bjóða mörg hver upp á sérstakar uppákomur og ókeypis aðgang í tilefni dagsins.

Um þrjúhundruð safna og menningarsetra eru um allt land og fjölbreytnin er gríðarleg. Það má fullyrða að það sé eitthvað spennandi fyrir alla á söfnum og menningarsetrum landsins. Þú finnur öll söfn og menningarsetur á landinu hér á Græna Íslandskortinu.

Mynd: Merki grænkortaflokkanna; „Menningarsetur“ og „Íslenskir þjóðhættir“ en auk þeirra eru flokkarnir; „Llist“, „Söfn“, „Sagnfræðileg sérkenni“, „Menningarlegar uppákomur“ og „Barnvænn staður“, flokkar sem taka til menningarstaða á landinu.

Birt:
12. júlí 2009
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Íslenski safnadagurinn er í dag“, Náttúran.is: 12. júlí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/07/12/islenski-safnadagurinn-er-i-dag/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: