TCO er sænskur umhverfis- og orkustaðall sem er á vegum sænsks stéttarfélags, TCO Tjänstemännens Central Orgnainsation. Upp úr 1980 fór stéttarfélagið að hafa áhyggjur af hnignandi heilsufari skrifstofufólks. Merkingin miðar að því að bæta vinnuumhverfi og taka tillit til umhverfisins. TCO merking nær aðallega yfir rafmagnsvörur eins og tölvur, tölvuskjái og farsíma. Seljandi tölvu sem dæmi verður að bjóða upp á að taka hana í endurvinnslu eftir förgun. Það sem greinir TCO merkingu frá hinum umhverfismerkjunum er að merkingin nær yfir sértæka vöruflokka. Sjá nánar á vef TCO .

Birt:
26. apríl 2010
Höfundur:
Finnur Sveinsson
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Finnur Sveinsson „TCO“, Náttúran.is: 26. apríl 2010 URL: http://nature.is/d/2007/05/07/tco/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 7. maí 2007
breytt: 26. apríl 2010

Skilaboð: