Hér í vefversluninni, á Náttúrumarkaðinum, er úrval af Svansmerktum heimilis- og rekstrarvörum sem fyrirtækið Servida flytur inn.

Markmiðið með Svaninum, Norræna umhverfismerkinu, er að auðvelda þér og öðrum neytendum að velja vörur sem hafa sem minnst skaðleg áhrif á umhverfið. Kröfur Svansins miðast við allan lífsferil vörunnar/þjónustunnar, frá vöggu til grafar. Það þýðir að áhrif vörunnar eru metin allt frá hráefni til úrgangs, og miðast kröfur Svansins við að lágmarka umhverfisálag vegna vörunnar. Það getur verið flókið mál að meta umhverfisáhrif vara og finna þá umhverfisvænstu. Svanurinn einfaldar málið og auðveldar þér að skapa betri framtíð!

Í hreinlætisvörudeildinni finnur þú allar Svansmerktu vörurnar okkar, þ.á.m. hreinsivöruþrennu frá fyrirtækinu Jysk Kemi Service A/S en það er vottað fyrirtæki skv. stöðlum ISO 14001. Í reinsivöruþrennuni eru Náttúrasápa, Alhreinsir og Extrarens iðnaðarhreinsi. Með því að nota umhverfisvottaðar hreinslætisvörur ert þú að taka virkan þátt í því að umhverfisáhrif af hreinlætinu á þínu heimili og fyrirtæki séu eins lítil og mögulegt er. Með því að hvetja starfsfólk til að nota hreinlætisvörur og pappírsvörur sparlega ert þú að enn frekar að minnka umhverfisáhrifin.

Skoða allar Svansmerktar vörur á Náttúrumarkaðinum, vefverslun Náttúran.is.
Skoðaðu meira um hreinlætisvörur og umhverfisáhrif þeirra hér í baðherberginu.
Sjá viðmiðunarreglur Svansins.

Myndin er af Svansmerktu pappírsvörurnum á Náttúrumarkaði. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
31. ágúst 2008
Höfundur:
Náttúran er
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran er „Svansmerkt hreinsivöruþrenna á Náttúrumarkaði“, Náttúran.is: 31. ágúst 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/02/svansmerktar-hreinsivoruthrenna-natturumarkaoi/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 2. apríl 2008
breytt: 31. ágúst 2008

Skilaboð: