Ráðstefnan „Orka og umhverfi – hvernig skal standa að orkunýtingarmálum á Íslandi?“ verður haldin þriðjudaginn 20. janúar 2009 kl. 9:00-16:15 á Grand Hotel, Reykjavik  en ráðstefnan er haldin á vegum Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands og Landverndar

Nýting Íslendinga á vatnsafli og jarðhita til raforkuvinnslu hefur aukist mikið undanfarin ár og nemur alls um 17 TWst í lok árs 2008. Um 80% raforkunnar fer til stóriðju og fyrirætlanir eru um að virkja enn frekar vegna nýrra verkefna í orkufrekum iðnaði. Það er mikilvægt að huga að því hvernig ákvarðanir um nýtingu er teknar. Ýmsir aðilar, s.s. OECD hafa gagnrýnt Íslendinga fyrir að vanda ekki nógu vel til verka þegar kemur að matsferlinu og bent á nauðsyn þess að meta umhverfiskostnað, áhættudreifingu og fleiri þætti sem hluta af heildarmati á þjóðhagslegum ábata. Aðrir telja að ekki sé þörf á miklum umbótum hvað þessi mál varðar.

Á ráðstefnunni verður skoðað hvernig málum er háttað hér á Íslandi og borið saman við það sem þekkist í öðrum löndum. Fjallað verður um stærð orkuauðlindanna og alþjóðlegu samhengi, svo og nýtingu fram að þessu. Þá verður fjallað um aðferðir og þann fræðilega grunn sem byggja skal á þegar ákvaðanir eru teknar um mögulega nýtingu orkuauðlinda, og ákvörðunarferlið hér á landi. Í lok ráðstefnunnar verða umræður um framsögur og reynt að draga lærdóm af þeim um það sem hugsanlega má betur fara í þessum málum hér á landi.

Dagskrá:

08:30 Skráning
09:00 Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, setur ráðstefnuna
09:10 Orkuauðlindir á Íslandi: yfirlit og alþjóðlegt samhengi - Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri, Orkustofnun
09:50 Main economic principles in energy resource exploitation - Ragnar Árnason, Háskóli Íslands
10:40 Kaffihlé
11:00 Non-market perspectives of energy resource exploitation - Brynhildur Davíðsdóttir, Háskóli Íslands
11:45 Hádegishlé
13:00 External costs in economic appraisals of energy projects: best practices - Staale Navrud, Norwegian University of Life Sciences
14:00 Hvernig tekur orkufyrirtæki ákvörðun um virkjun? - Björn Stefánsson, Landsvirkjun
14:40 Kaffihlé
15:00 Pallborðsumræður - Gunnar Haraldsson, Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, stýrir
16:00 Samantekt – dreginn lærdómur - Friðrik Már Baldursson, Háskólinn í Reykjavík
16:15 Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, slítur ráðstefnunni

Ráðstefnustjóri er Björgólfur Thorsteinsson, formaður Landverndar.
Skráning á landvernd.is. Ráðstefnugjald: er kr. 4.000. Ráðstefnan fer fram á ensku

Hér má nálgast dagskrá til útprentunar á pdf formi.

Birt:
10. janúar 2009
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Orka og umhverfi – hvernig skal standa að orkunýtingarmálum á Íslandi?“, Náttúran.is: 10. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/10/orka-og-umhverfi-hvernig-skal-standa-ao-orkunyting/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: