Matarkistan Skagafjörður
Þróunarklasinn Matarkistan Skagafjörður miðar að því að auka þátt skagfirskrar matarmenningar í veitingaframboði á svæðinu þannig að gestir geti notið gæðahráefnis og upplifað menningu svæðisins. Merki Matarkistunnar er ætlað að draga athyglina að mat sem framleiddur er frá grunni eða að hluta í Skagafirði.
Veitingastaðir sem eru þátttakendur í verkefninu merkja þá rétti á matseðli sem eru að stærstum hluta úr skagfirsku hráefni.
Birt:
12. maí 2011
Tilvitnun:
Matur úr héraði „Matarkistan Skagafjörður“, Náttúran.is: 12. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2009/10/26/matarkistan-skagafjorour/ [Skoðað:21. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 26. október 2009
breytt: 16. maí 2011