Í dag er Dagur Jarðar haldinn hátíðlegur um allan heim en Dagur Jarðar var fyrst haldlinn hátíðlegur þ. 22. apríl 1970 í Bandaríkjunum þegar um 20 milljónir manna tólku þátt í hátíðahöldunum. Ákvörðun um að efna til Dags Jarðar var tekin árið áður á ráðstefnu grasrótarsamtaka á sviði umhverfisverndar í Bandaríkjunum. Á þeim tíma var umræðan um offjölgun í heiminum að komast í hámæli og miklar áhyggjur voru uppi um framtíð Jarðar vegna fólksfjölgunar.

En Degi Jarðar óx fiskur um hrygg er grasrótarsamtök með mismunandi umhverfisáherslur sáu mikilvægi þess að sameinast um hátíðahöld á einum degi á ári „ Degi Jarðar“. 

Þann 22. apríl árið 1990 voru 200 milljónir manna í 141 löndum þátttakendur í hátíðahöldum Dags Jarðar og áherslan á verndun Jarðar með aukinni endurvinnslu, baráttu gegn olíuslysum, verksmiðjumengun, afrennslisvandamálum, eyðingu búsvæða villtra dýra o.s.fr. Sjá nánar um sögu Earth Day á wikipediu.

Í dag næstum 40 árum eftir fyrsta Dag Jarðar stöndum við frammi fyrir vandamálum sem tekur alla jarðarbúa að leysa. Þess vegna hefur Dagur Jarðar aldrei verið mikilvægari en í dag. Dagur Jarðar 2009 er kenndur við „grænu kynslóðina“ en fjölbreytt dagskrá hefur verið undirbúin víða um heim og áherslurnar eru jafn margar og vandamálin sem leysa þarf. Sjá nánar um það sem um er að vera í heiminum í dag á Degi Jarðar á earthdaynetwork.

Hvað er Ísland að gera á Degi Jarðar?

Grafík: Jörðin og umhverfið, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.
Birt:
22. apríl 2009
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Dagur Jarðar er í dag“, Náttúran.is: 22. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/22/dagur-jaroar-er-i-dag/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: