Aðalfundur Landverndar 2011
Aðalfundur Landverndar verður haldinn að Nauthóli í Nauthólsvík fimmtudaginn 26. maí kl. 16.00 og opnar húsið kl. 15.45.
Í kjölfar venjulegra aðalfundarstarfa verður boðið upp á hringborðsumræður þar sem sjónum verður beint að „umgengni við landið“. Á mörgu er að taka og vonast stjórn og starfsmenn Landverndar til að með hjálp fundargesta verði hægt að varpa ljósi á brýnustu verkefnin og leiðir til úrlausna. Landvernd hvetur náttúruverndarfólk eindregið til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í hringborðsumræðum.
Á aðalfundi verður kosið til stjórnar og eru fimm í kjöri sem endranær, þar af fjórir stjórnarmenn, auk formanns. Auk þess kýs aðalfundur skoðunarmenn reikninga. Þau Heiðrún Guðmundsdóttir, Tryggvi Felixson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir hafa verið skipuð í uppstillingarnefnd aðalfundar.
Þeir sem vilja koma ábendingum um nýja stjórnarmenn og formann á framfæri við uppstillingarnefnd geta sent skilaboð á netfangið landvernd@landvernd.is. Ábendingar þurfa að berast eigi síðar en sunnudaginn 22. maí. Farið verður með allar ábendingar sem trúnaðarmál.
Dagsrká:
15:45 Húsið opnar - skráning
16.00 Aðalfundarstörf hefjast
- Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra
- Kjör fundarstjóra og fundarritara
- Formaður flytur skýrslu um starfsemina undangengið starfsár
- Kynning á ársreikningum fyrir 2010
- Kynning á tillögum að ályktunum aðalfundar
- Kosning til stjórnar og skoðunarmanna reikninga
- Kynning á ferðum Landverndar í sumar
17:15 Umgengnin við landið
- Hringborðsumræður að hætti heimskaffis
18:45 Afgreiðsla ályktana
19:15 Ilmandi súpa
Minnt er á að til þess að öðlast atkvæðisrétt á aðalfundi þurfa félagar og aðildarfélög að hafa greitt árgjaldið 2010-2011.
Vinsamlegast skráið þátttöku í síma 552 5242 eða sendið tölvupóst á landvernd@landvernd.is.
Fundurinn er öllum opinn og nýir félagar eru velkomnir.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Aðalfundur Landverndar 2011“, Náttúran.is: 18. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/18/adalfundur-landverndar-2011/ [Skoðað:21. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.