Fuglaráðstefna í Öskju
Fuglavernd stendur fyrir ráðstefnu um fugla laugardaginn 19. apríl, kl. 13–16:30 í Öskju, Háskóla Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Líffræðistofnun Háskólans og Náttúrufræðistofnun.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra setur ráðstefnuna. Fundarstjórar verða Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Náttúrustofu Norðvetsurlands og Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur. Á milli fyrirlestra verða stuttar umræður.
Dagskrá fyrirlestra:
Jan Ejlstedt, framkvæmdastjóri DOF (danska fuglaverndarfélagsins) - Alþjóðleg fugla- og búsvæðavernd.
Kristinn Haukur Skarphéðinsson og Guðmundur A. Guðmundsson, Náttúrufræðistofnun. Fuglastofnar á Íslandi - Ástand og horfur
Freydís Vigfúsdóttir, Náttúrufræðistofnun - Sjófuglar í breytilegu umhverfi.
Tómas Gunnarson, Háskólasetri Snæfellsness - Búsvæði fugla á Íslandi – sérstaða og framtíð.
Einar Ó. Þorleifsson, Fuglavernd - Staða fuglaverndar á Íslandi.
Allir velkomnir.
Birt:
Tilvitnun:
Fuglavernd „Fuglaráðstefna í Öskju“, Náttúran.is: 14. apríl 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/14/fuglaraostefna-i-oskju/ [Skoðað:26. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.