Green Drinks eða „Grænir drykkir“ er alþjóðleg óformlegt samfélag sem starfar óhefðbundið í yfir 500 borgum um allan heim. Grænir drykkir hafa það að markmiði að fólk með áhuga á umhverfismálum hittist og efli með sér tengsl til að vinna að grænum og góðum málefnum. Jafnt áhugafólks sem fagaðilar eru velkomnir í hópinn. Margir hafa myndað tengls og jafnvel fundið sér starfsvettvang innan umhverfistengdra fyrirtækja, samtaka með þátttöku á samdrykkju með grændrykkjufélögum um allan heim.

Í þetta sinn verður hist í Leikjavík, Barónsstíg 3, miðvikudaginn 19. janúar kl 19:00-22:00. Guðrún Tryggvadóttir stofnandi og framkvæmdastjóri Náttúran.is mun segja frá reynslu sinni af undirbúningi og gerð Græna kortsins. Þetta er fjórði grændrykkjufundur sem haldinn er á þessum vetri í Reykjavík. Fyrstu grændrykkjarsamseturnar voru haldin í Reykjavík tvisvar sinnum árið 2009. Sjá frétt um fyrstu og aðra samsetu og grein um heimsókn Margaret Lydecker stofnanda Green Drinks NYC til Íslands.

Sjá facebooksíðu Green Drinks Reykjavík.

greendrinks.reykjavik@gmail.com.

Sjá alþjóðlegan vef Green Drinks.

Fjöldi skemmtilegra merkja og myndefnis hefur verið unnið til að vekja athygli á Grænum drykkjum um allan heim. Mynd: Merki Green Drinks Reykjavík.

Birt:
17. janúar 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Græn samdrykkja heldur áfram“, Náttúran.is: 17. janúar 2011 URL: http://nature.is/d/2011/01/17/graen-samdrykkja-heldur-afram/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: