Garðfuglaskoðun 23. til 26. janúar 2009
Dagana 23.–26. janúar 2009 stendur Fuglavernd fyrir garðfuglaskoðun sem er nú einn af þeim árvissu viðburðum sem félagið stendur fyrir. Landsmenn eru hvattir til þess að taka þátt í garðfuglaskoðun 2009, sérstaklega þeir sem gefa fuglum í görðum sínum. Þeir Íslendingar sem gefa fuglum að vetri til teljast örugglega í þúsundum. Markmið garðfuglaskoðunar er að fá sem flesta til þess að skoða fugla í görðum sínum og vekja áhuga á fuglaskoðun og hversu auðvelt það er að stunda hana. Fá fólk til þess að fóðra fugla, vekja áhuga á fuglum og töfrum þeirra. Ennfremur er markmiðið að afla upplýsinga um fugla í görðum landsmanna, hvaða tegundir eru til staðar og í hve miklu magni og á tímum loftslagsbreytinga.
Nú þegar harðnar á dalnum hjá smáfuglunum hvetur Fuglavernd landsmenn til þess að gefa fuglum. Það er uppbyggjandi tómstundargaman og þannig má einnig aðstoða þá garðfugla í lífsbaráttunni. Fuglavernd hefur gefið út veglegan fræðslubækling um garðfugla. Þar er fróðleikur og myndir af fuglum sem sækja í garða, hvernig á að fóðra þá og hvaða tré henti best til þess að laða að fugla í garða. Félagar í Fuglavernd hafa fengið þennan bækling og nýir félagar fá hann sendan heim.
Upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra má finna á Garðfuglavefnum. Þar er einnig hægt að senda inn niðurstöður garðfuglaskoðunar.
Hér er hægt að sækja eyðublað og frekari upplýsingar um Garðfuglaskoðun 2009.
Ljósmynd: ©Örn Óskarsson.Birt:
Tilvitnun:
Fuglavernd „Garðfuglaskoðun 23. til 26. janúar 2009“, Náttúran.is: 21. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/02/11/garofuglaskooun-23-til-26-januar-2009/ [Skoðað:22. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 11. febrúar 2009