Sunnudaginn 31. október n.k. verður Fuglavernd með fuglaskoðun í Fossvogskirkjugarði - sama dag og árleg garðfuglakönnun Fuglaverndar hefst.

Lagt verður af stað frá bílastæðinu við Fossvogskirkju klukkan 14:00. Edward Rickson fuglaskoðari með meiru mun leiða gönguna.

Veðurspáin er ágæt og mikið fuglalíf er í garðinum um þessar mundir. Munið eftir að taka sjónaukann með. Allir velkomnir.

Ljósmynd: Skógarþröstur, Jóhann Óli Hilmarsson.

Birt:
28. október 2010
Höfundur:
Fuglavernd
Tilvitnun:
Fuglavernd „Fuglaskoðun í Fossvogskirkjugarði“, Náttúran.is: 28. október 2010 URL: http://nature.is/d/2010/10/28/fuglaskodun-i-fossvogskirkjugardi/ [Skoðað:22. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 17. janúar 2011

Skilaboð: