Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi í Fljótsdalshéraði hefur á undanförnum árum plantað um milljón trjám á landi sínu í Vallanesi, mikið af þeim stafafura [Pinus contora].

Allt sem Eymundur framleiðir hvort sem eru tré, kartöflur, bygg eða grænkál er ræktað með aðferðum lífrænnar ræktunar enda ber bú hans vottun frá vottunarstofunni Túni um 100% lífræna ræktun í Vallanesi. Bygg, olíur, grænmeti og tilbúnir réttir eru markaðssettir undir nafninu Móðir jörð og fást m.a. olíur og bygg frá Móður jörð hér á Náttúrumarkaðinum.

Nú er komið að þriðju uppskeru nokkurra hundraða þessarar lífrænt ræktuðu stafafuru og munu þær vera á boðstólum á stéttinni fyrir utan verslunina Yggdrasil á Skólavörðustíg í Reykjavík dagana 11. des. frá kl. 15:00-22:00, þ. 12. og 13. des. frá kl.13:00-22:00. Síðan aftur frá 17. - 23. des. frá kl. 13:00-22:00. Trén verða einnig til sölu hjá Frú Laugu - Bændamarkaði Laugalæk frá og með 11. desember.

Sjá nánar um Móður Jörð á vef fyrirtækisins www.vallanes.net.

Sjá Móður Jörð hér á Grænum síðum en nokkrar vörutegundir Móður Jarðar eru til sölu hér á Náttúrumarkaði. Birkiolía, Blágresisolía, Lífolía, og lífrænt byggmjöl.

Myndin er af stafafurru [Pinus contora] í Reykholti. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
3. desember 2009
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lífrænt ræktuð íslensk jólatré frá Vallanesi“, Náttúran.is: 3. desember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/12/02/lifraent-raektuo-islensk-jolatre-fra-vallanesi/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 2. desember 2009
breytt: 8. desember 2009

Skilaboð: