Að gefnu tilefni er ítrekað að mikið öskufall er á svæðinu frá Mýrdalssandi og austur fyrir Freysnes í Öræfum.  Þjóðvegur 1, um Skeiðarársand, er lokaður frá Kirkjubæjarklaustri  að Freysnesi.  Ekkert ferðafæri er á svæðinu þar sem öskufallið er mest og ekkert skyggni er til gosstöðvanna.  Þeim sem ekki eiga brýnt erindi á svæðið er bent á að vera ekki á ferðinni.

Ekki er talin ástæða til að rýma svæðið en íbúar og þeir ferðamenn sem þegar eru á svæðinu hvattir til að halda sig innadyra og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.  Þeir sem þurfa að vera úti eru hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu.

Búið er að opna fjöldahjálparstöðvar í félagsheimilinu á Klaustri og Hofgarði fyrir þá sem treysta sér til að fara á þá staði.  Íbúar á svæðinu eru hvattir til að hafa samband við nágranna sína og veita hver öðrum stuðning.  Búið er að virkja hjálparsíma RKÍ 1717.

Verið er að vinna í að koma rykgrímum og hlífðargleraugum til þeirra sem eru á svæðinu en það gengur hægt vegna aðstæðna á vettvangi.

Birt:
22. maí 2011
Tilvitnun:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra „Eldgos í Grímsvötnum, staðan kl.10:40“, Náttúran.is: 22. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/22/eldgos-i-grimsvotnum-stadan-kl1040/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: