Landvernd boðar til samkeppni um umhverfisfrétt í framhaldsskólum landsins. Samkeppnin er styrkt af Umhverfisfræðsluráði og Gámaþjónustunni hf. Verðlaun verða veitt fyrir bestu fréttirnar: Keppnin er unnin í anda alþjóðlega verkefnisins Ungir umhverfisfréttamenn. Verðlaun fyrir bestu fréttirnar eru:

  1. sæti 30.000 kr.
  2. sæti 20.000 kr.
  3. sæti 10.000 kr.

Ef þátttaka verður mikil kemur til greina að veita fleiri verðlaun. Fréttin á að vera hnitmiðuð grein (e.t.v. með mynd), stutt myndband eða hljóðupptaka, (þ.e. blaða-, sjónvarps- eða útvarpsfrétt). Viðfangsefnið á að vera úr í nærumhverfi nemenda sem þeir rannsaka og skoða og setja í vítt umhverfislegt samhengi.

Unnið verður að því að birta fréttirnar á opinberum vettvangi. Einhverjar þeirra munu birtast í blaði Landverndar, Kríunni, og á heimasíðu samtakanna. Bestu fréttirnar verða þþddar á ensku, í samráði við höfunda þeirra, og sendar til alþjóðlega verkefnisins Ungir umhverfisfréttamenn.

Fréttin skal send, fyrir 1. apríl, á netfangið landvernd@landvernd.is, merkt efni (subject): Ungir umhverfisfréttamenn.

Meira um FEE verkefnið Ungir umhverfisfréttamenn
Ungir umhverfisfréttamenn (Young Reporters for the Environment, YRE) er eitt af verkefnum FEE Foundation for Environmental Education, samtökunum sem einnig halda utan um verkefnið um Grænfána (Eco-Schools). Nemendum er ætlað, með aðstoð kennara sinna, að kynna sér og rannsaka viðfangsefni í nærumhverfi sínu, setja það í vítt samhengi og vinna fréttaefni t.d. grein, ljósmynd, útvarpsefni eða myndband á móðurmálinu. Lykilorðin eiga að vera: Skilningur, virkni, jákvæðni. Meginý emu verkefnisins eru: Landbúnaður, borgir, ströndin, orka, úrgangur og vatn. Markmið hvers verkefnis á að vera að miðla upplýsingum til almennings. Á heimasíðu verkefnisins www.youngreporters.org skiptast þátttakendur á upplýsingum og fréttum.
Birt:
11. mars 2008
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Ungir umhverfisfréttarmenn - Samkeppni“, Náttúran.is: 11. mars 2008 URL: http://nature.is/d/2008/03/11/ungir-umhverfisfrettarmenn-samkeppni/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 14. mars 2008

Skilaboð: