Sveppir eru dularfullar lifverur, reyndar teljast þeir ekki einu sinni til plönturíkisins heldur eru sérstakt fyrirbrigði í lífríkinu.

Á Íslandi eru nú um 2000 tegundir af sveppum þekktir. Þá eru ekki taldir með rúmlega 700 tegundir sveppa sem eru fléttumyndandi, þ.e. hafa þörunga í þjónustu sinni. Sveppir skiptast í marga flokka, en stærstir eru kólfsveppir og asksveppir.

Til að tína sveppi til matar er nauðsynlegt að afla sér haldgóðra upplýsinga því sumir sveppir eru eitraðir. Eiginlega þarf sveppatínslumaðurinn að komast í andlega snertingu við sveppina. Sveppir vaxa ekki bara si svona heldur í sambýli við annan gróður. Sveppir með svampbotni þykja bestir matsveppir hér á landi. Lerki- og furusveppir eru auðfundnastir og áhættuminnstir fyrir byrjendur og auðvelt að þekkja vaxtarstaði þeirra. Þegar nóg er af sveppum má henda stilk og svampbotni og nýta aðeins það besta. Steikið ferska í smjöri eða hafið í sósur og súpur.

Sjá meira um allt í húsinu og í kringum það hér í þættinum Húsið og umhverfið.

Birt:
11. september 2010
Höfundur:
Náttúran
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran „Sveppir eru dularfullar lífverur“, Náttúran.is: 11. september 2010 URL: http://nature.is/d/2009/09/07/sveppir-eru-dularfullar-lifverur/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 7. september 2009
breytt: 13. september 2010

Skilaboð: