Náttúruverndar- og umhverfissamtök á Íslandi boða til náttúruverndarþings í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð laugardaginn 24. apríl nk. kl. 10.00-15.30.

Náttúruverndarþing er haldið til að leiða saman alla þá sem hafa áhuga á umhverfis- og náttúruverndarmálum. Markmiðið er að skapa öflugan grundvöll samstarfs og umræðu um málefni og baráttuaðferðir náttúruverndarfólks og náttúruverndarsamtaka á Íslandi.

Dagskrá þingsins er tvíþætt. Fyrri hluta dags verða flutt erindi um verkefni sem verið hafa til skoðunar og í umræðunni að undanförnu s.s. rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða, verndun jarðminja á framkvæmdasvæðum, endurheimt votlendis, loftslagsbreytingar og löggjöf um náttúruvernd.  Einnig verður fjallað um stöðu og þýðingu náttúruverndar og spáð í framtíðina. Seinni hluti þingsins verður að hætti Heimskaffis helgaður málstofum um verkefnin framundan og leiðir til að takast á við þau.

Mikilvægt er að náttúruverndarfólk fjölmenni á þingið til að leggja á ráðin og hafa áhrif á þróun náttúruverndar á Íslandi til framtíðar.

Boðið verður upp á kaffiveitingar,  súpu og brauð í hádeginu.

Sjá dagskrána hér að neðan:

10.00 Setning - Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur

10.10 Ávarp - Svandís Svavarsdóttur, umhverfisráðherra

10.25 Jarðminjar í kreppu - Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur

10.50 Rammaáætlun ‐ Hvað svo?

11.15 Náttúran og löggjöfin - Katrín Theódórsdóttir, lögmaður

11.30 Endurheimt votlendis og loftslagsbreytingar - Einar Þorleifsson, Náttúruvaktin

11.45 Staða náttúruverndar í dag - Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands

12.00 Náttúruverndarsamtök – þýðing og mikilvægi - Björgólfur Thorsteinsson, formaður Landverndar

13.00 Hádegishlé Málstofur að hætti Heimskaffis um verkefnin framundan og leiðir til að takast á við þau.

15.00 Ályktanir náttúruverndarþings

15.30 Fundarslit

Fundarstjórn: Hólmfríður Arnardóttir (Fuglavernd) og Lárus Vilhjálmsson (Landvernd)

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Landverndar í síma 552 5242 eða með pósti til sigrunpals@landvernd.is

Upplýsingar hjá Einari Ó. Þorleifssyni í síma 857 2161 og Sigrúnu Pálsdóttur í síma 552 5242/866 9376

Ljósmynd: Séð inn Arnarfjörð, Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
15. apríl 2010
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Sigrún Pálsdóttir „Náttúruvernd á krossgötum – vörn og sókn“, Náttúran.is: 15. apríl 2010 URL: http://nature.is/d/2010/04/15/natturuvernd-krossgotum-vorn-og-sokn/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: