Wal-Mart vill bæta kínversk umhverfismál
Wal-Mart, stærsti smáseljandi í heimi, hyggst á fundi með kínverskum viðskiptavinum sínum setja sér markmið um að takmarka áhrif fyrirtækisins og viðskiptavina þess á umhverfið.
Rétt tæplega 10% innflutnings Bandaríkjanna til Kína eru á vegum Wal-Mart, en fyrirtækið flutti inn vörur til Kína fyrir 321 milljarð Bandaríkjadala á síðasta ári.
Lee Scott, forstjóri Wal-Mart sagði í viðtali við Financial Times að fyrirtækið telji sig getað áorkað miklu í Kína, í ljósi vitundarvakningar stjórnvalda þar í landi um þann skaða sem iðnvæðingin hefur valdið á umhverfinu.
Wal-Mart hóf átak í umhverfismálum fyrirtækisins árið 2005. Scott segir að hann vonist til að sjá umtalsverðan árangur í Kína á næstu 3-5 árum.
Birt:
6. apríl 2008
Tilvitnun:
Viðar Þorsteinsson „Wal-Mart vill bæta kínversk umhverfismál“, Náttúran.is: 6. apríl 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/06/wal-mart-vill-baeta-kinversk-umhverfismal/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.