Grænt Reykjavíkurkort er nú komið út í prentútgáfu og er dreifing hafin. Kortið er í stærðinni 100 x 70 cm, brotið í 24 síður. Kortið spannar 35 flokka en á bakhliðinni er veggspjald af Húsinu, með inngangstextum fyrir hvert rými. Græna Reykjavíkurkortið kemur út í 10 þúsund eintökum og verður kortinu dreift ókeypis í borginni. Hafist verður handa við að dreifa kortinu í byrjun vikunnar. Höfuðborgarstofa sér um dreifingu kortsins en einnig er hægt að fá kortið sent heim gegn vægu gjaldi.

Hvað er grænt Reykjavíkurkort?

Grænt Reykjavíkurkort er samvinnuverkefni vefsins Náttúran.is, fjölþjóðlega verkefnisins Green Map® System, Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands. Tilgangur grænna korta víða um heim er að gera vistvæna kosti á sviði viðskipta, menningar og ferðaþjónustu sýnilegri og aðgengilegri. Græn kort hafa nú verið þróuð í yfir 600 sveitarfélögum, borgum og hverfum í 55 löndum. Ísland er fyrsta landið sem flokkar allt landið eftir Green Map kerfinu.

Prentútgáfan er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og byggir á vefútgáfu Græna Íslandskortsins hér á Náttúran.is en hún tekur fyrir allt Ísland með yfir 3.000 skráningum í 100 flokkum. 

Green Map er lifandi kerfi og lagar sig að þeirri þróun sem á sér stað í þjóðfélaginu. Það er von útgefanda að græn kort verði með öllu ónauðsynleg innan fárra ára enda verði græn hugsun þá orðin sjálfsögð, ekki undantekning, eins og nú er. En þangað til er öllum frjálst að fá skráningu á Grænt Reykjavíkurkort og Grænt Íslandskort svo framarlega sem að starfsemi viðkomandi uppfylli þau skilyrði og viðmið sem sett eru af Green Map kerfinu.

Græna Reykjavíkurkortið er Svansmerktur prentgripur, prentað á Svansvottaðan pappír í Svansmerktu prentsmiðjunni Odda.

Grunnskráning á vefútgáfu Græna Reykjavíkur- og Íslandskortsins er ókeypis en hægt er að kaupa ítarlegri skráningu gegn vægu árgjaldi. Hafið samband í síma 483 1500 eða skrifið okkur á nature@nature.is.

Hægt er að panta kortið hér á Náttúrumarkaði og fá kortið sent heim, annað hvort sem brotið kort eða sem plakat, þá óbrotið en það verður þá sent til þín í pappahólk. Verðið miðast við umbúðir og afgreiðslukostnað en kortið sjálft er frítt.

Grænt Reykjavíkurkort 2010. © Náttúran.is. Allur réttur áskilinn.
Útgefandi: Náttúran er ehf. í samvinnu við Green Map® System (www.greenmap.org), Reykjavíkurborg og Land- og ferðamálafræðistofu Verkfræði og Náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Hönnun: Guðrún A. Tryggvadóttir & Signý Kolbeinsdóttir.
Ritstjóri: Guðrún A. Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri.
Ráðgjöf: Anna Karlsdóttir, mannvistarlandfræðingur.
Þýðingar á ensku: Ingibjörg Elsa Björnsdóttir.
Yfirlestur enskra texta: Paul Herman.
Tæknileg útfærsla vefútgáfu: Einar Bergmundur Arnbjörnsson, tækniþróunarstjóri.
Kortagrunnur © OpenStreetMap contributors, CC-BY-SA. www.openstreetmap.org.

Kortið er birt með fyrirvara um réttar upplýsingar og er aðeins ætlað til glöggvunar en ekki ferða. Allar nánari upplýsingar á www.natturan.is (IS) eða í síma 483 1500.

Birt:
28. september 2010
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Grænt Reykjavíkurkort komið út í prentútgáfu“, Náttúran.is: 28. september 2010 URL: http://nature.is/d/2010/09/25/graent-reykjavikurkort-komid-ut-i-prentutgafu/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 25. september 2010
breytt: 28. september 2010

Skilaboð: