Náttúran birtir nú þriðja sáðalmanakið fyrir árið 2012 en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tók saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar í fyrra og heldur áfram að taka þau saman fyrir okkur í ár.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur     Tími

1.   apríl  00-04 blóm, 05-24 blað
2.   apríl  00-18 blað, 19-24 ávextir
3.   apríl  00-21 ávextir, 22-24 óhagstætt
4.   apríl  00-24 óhagstætt
5.   apríl  00-10 óhagstætt, 11-23 rót
6.   apríl  óhagstætt
7.   apríl  óhagstætt
8.   apríl   01-06 rót, 07-24 blóm
9.   apríl   00-11 blóm, 12-24 blað
10. apríl   00-24 blað
11. apríl  00-14 blað, 15-24 ávextir
12. apríl  00-24 ávextir
13. apríl  00-19 ávextir, 20-24 rót
14. apríl  00-24 rót
15. apríl  00-22 rót
16. apríl  00-24 blóm
17. apríl  00-24 blóm
18. apríl  00-24 blað
19. apríl  00-24 blað
20. apríl  00-24 blað
21. apríl  00-03 blað, 04-24 ávextir
22. apríl  00-24 ávextir
23. apríl  00-03 ávextir, 04-13 rót, 14-24 ávextir
24. apríl  00-07 ávextir, 08-24 rót
25. apríl  00-24 rót
26. apríl  00-04 rót, 05-24 blóm
27. apríl  00-24 blóm
28. apríl  00-11 blóm, 12-22 blað
29. apríl  00-22 ávextir
30. apríl  02-24 ávextir.

1. til 10. apríl er hagstætt tímabil til gróðursetningar og til að stinga græðlingum.
11. til 24. apríl hagstætt til að klippa græðlinga.
25. til 30. apríl hagstætt til gróðursetningar og til að stinga græðlingum.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáðalmanak fyrir apríl 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
15. apríl 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Hildur Hákonardóttir „Sáðalmanak fyrir apríl 2012“, Náttúran.is: 15. apríl 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/26/sadalmanak-fyrir-april-2012/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 26. mars 2012
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: