The Carbon Trust er kolefnissjóður sem settur var á laggirnar af bresku ríkisstjórninni árið 2001 en starfar sem sjálfstætt fyrirtæki. Sjóðurinn hefur það að markmiði að hvetja til minnkunar á losun kolefnis CO2 og vinna með samtökum og fyrirtækjum að þróun tækniaðferða sem geti stuðlað að minnkun kolefnislosunar í atvinnulífinu.

The Carbon Trust er á þróunarstigi með CO2 Carbon label (kolefnisvottun) sem sýnir þá kolefnislosun í grömmum sem hver einstök vara er ábyrg fyrir. The Carbon Trust mælir þá kolefnislosun sem framleiðsla vörunnar, þar með talin ræktun hráefnisins, orkunotkun og dreifing eru ábyrg fyrir og er eina viðurkennda viðmið sinnar tegundar í Bretlandi.

Sjá vef breska Kolefnissjóðsins.
Auglýsingabolir, sem bera vottunina eru fáanlegir hér á Náttúrumarkaði.

Birt:
18. mars 2008
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Carbon Trust fyrstir með kolefnisvottun“, Náttúran.is: 18. mars 2008 URL: http://nature.is/d/2008/03/18/carbon-trust-fyrstir-meo-kolefnisvottun/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: