Í heiminum eru til um 10 þúsund tegundir grasa. Meðal þeirra eru korntegundirnar hafrar, rúgur, hveiti, bygg, hrís og maís. Fyrir um 10 þúsund árum byrjaði fólk að hagnýta sér þessar tegundir til matar, þegar það uppgötvaði gæði fræjanna. Frá þeim tíma hafa þessar tegundir verið ein meginstoð í mat manna. Allt frá landnámi hefur þurrt hey verið nýtt sem vetrarfóður fyrir búpening. Grasið á sumrin og heyið á veturna verður þannig að kjöti og mjólk sem hefur átt sinn þátt í að halda í okkur lífinu.

Birt:
18. apríl 2010
Höfundur:
Valgeir Bjarnason
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Valgeir Bjarnason „Hey og gras“, Náttúran.is: 18. apríl 2010 URL: http://nature.is/d/2007/05/16/hey-og-gras/ [Skoðað:21. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. maí 2007
breytt: 21. maí 2014

Skilaboð: