Náttúruverndarþing 2012 verður haldið laugardaginn 28. apríl n.k. í Háskólanum í Reykjavík (stofu M-101) frá kl. 10-16:30.

Á þinginu er fyrirhugað að ræða eftirfarandi:

  • stöðu mála varðandi verndun og orkunýtingu landssvæða
  • stöðu, skipulag og samstarf félagasamtaka í náttúruvernd á Íslandi

Auk þessa verða þrjár samliggjandi málstofur þar sem eftirfarandi málefni verða til umræðu:

  1. náttúruvernd og ferðaþjónusta
  2. náttúruvernd og lýðræði
  3. náttúruvernd, friðlönd og þjóðgarðar

Um kvöldið er stefnt að því að blása til náttúruverndarfagnaðar og slá upp balli með tilheyrandi. Nánari dagskrá verður send út þegar nær dregur, en endilega takið frá daginn og kvöldið.

Dagskrá

10:00   Setning Náttúruverndarþings

10:10   Verndun og orkunýting landssvæða: næstu skref 
Friðrik Dagur Arnarson, landfræðingur og fulltrúi náttúruverndarhreyfingarinnar í rammaáætlun 2 
Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari og stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands

11:15   Málstofur og vinnuhópar:

Málstofa 1: Náttúruvernd og ferðaþjónusta
Innlegg: Arnar Már Ólafsson, markaðsstjóri hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum
Málstofustjórar: Rannveig Ólafsdóttir, dósent í ferðamálafræði og Anna G. Sverrisdóttir, stjórnarkona í Landvernd

Málstofa 2: Náttúruvernd og lýðræði 
Innlegg: Kristinn Már Ársælsson, félagsfræðingur og stjórnarmaður í Öldu
Málstofustjóri: Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar

Málstofa 3: Náttúruvernd, friðlönd og þjóðgarðar 
Innlegg: Helga Ögmundardóttir, mannfræðingur
Málstofustjóri: Einar Þorleifsson, náttúrulandfræðingur

12:45   Hádegisverður í Nauthóli

13:40   Afhending Náttúruverndarans, viðurkenningar fyrir ötula náttúruverndarbaráttu á Íslandi

13:50   Skipulag og samstarf náttúruverndarfélaga
Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur
Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistar- og leiðsögukona
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur

14:45   Ályktanir vinnuhópa

15:45   Kaffi

16:05   Kosning um ályktanir

16:20   Kosning í undirbúningsnefnd næsta þings

16:25   Þingslit

20:00   Náttúruverndarball með skemmtidagskrá á Sólon frá kl. 20:00. Aðgangur ókeypis.

Þingforsetar: Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri og Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki.


Verð á hádegismat er 1.990,-. Vinsamlegast skráið ykkur í mat fyrir 25. apríl á netfangið:
skraning@landvernd.is.

Matseðill: Grilluð kjúklingabringa með mús úr sætum kartöflum, sítrónu- og spínatsósu og kryddjurtasalati með ristuðum hnetum og fræjum. Kaffi og konfektmoli á eftir. Vinsamlegast látið vita ef óskir eru um grænmetisfæði.

 

Ljósmynd: Frá Þeistereikjum, Sigmundur Einarsson.

 

Nánar um málstofur

Náttúruvernd og ferðaþjónusta
Erlendir ferðamenn voru rúmlega 560 þúsund árið 2011 og hefur árlega fjölgað að jafnaði um 5,3% á síðustu 10 árum. Sé miðað við áframhaldandi fjölgun með sama hraða verða hér um 900 þúsund erlendir ferðamenn árið 2020. Hvernig eru Íslendingar í stakk búin að taka á móti svo mörgu fólki án þess að það bitni á náttúrugæðum? Hvaða leiðir eru færar til að tryggja vernd sérstæðra svæða, sérlega á hálendi Íslands? Hvaða stefnu vilja umhverfis- og náttúruverndarsamtök taka í þessum málum? Málstofan mun leita svara við þessum spurningum og fleirum.


Náttúruvernd og lýðræði

Aðkoma almennings að ákvörðunum um umhverfismál, náttúruvernd og stórframkvæmdir er lítil hér á landi. Með hvaða hætti er hægt að auka vald almennings á þessu sviði? Veita sveitarstjórnarlög og skipulagslög almenningi nægileg áhrif? Hafa sveitarstjórnir of mikil völd á kostnað heildarhagsmuna í skipulags- og náttúruverndarmálum? Á almenningur að geta knúið fram íbúakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur um umdeild mál? Málstofan mun leita svara við þessum spurningum og fleirum.


Náttúruvernd, friðlönd og þjóðgarðar

Hvernig virkjum við betur hreyfingu náttúruverndarfélaga í hugmyndaríkri og framsækinni náttúruvernd?

  • til öflugri náttúruverndar með alvöru friðlöndum
  • fleiri þjóðgörðum
  • meiri endurheimt náttúrugæða með virku eftirliti áhugafólks um náttúruvernd með friðun og friðlöndum
  • alvöru eftirfylgni með skuldbindingum við alþjóðasáttmála í umhverfis- og náttúruvernd heima fyrir og á víðari grundvelli í umhverfi hnattrænna umhverfisvandamála.

 

Birt:
26. apríl 2012
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Blásið til Náttúruverndarþings“, Náttúran.is: 26. apríl 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/21/blasid-til-natturuverndarthings/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2012
breytt: 26. apríl 2012

Skilaboð: