Blásið til Náttúruverndarþings
Náttúruverndarþing 2012 verður haldið laugardaginn 28. apríl n.k. í Háskólanum í Reykjavík (stofu M-101) frá kl. 10-16:30.
Á þinginu er fyrirhugað að ræða eftirfarandi:
- stöðu mála varðandi verndun og orkunýtingu landssvæða
- stöðu, skipulag og samstarf félagasamtaka í náttúruvernd á Íslandi
Auk þessa verða þrjár samliggjandi málstofur þar sem eftirfarandi málefni verða til umræðu:
- náttúruvernd og ferðaþjónusta
- náttúruvernd og lýðræði
- náttúruvernd, friðlönd og þjóðgarðar
Um kvöldið er stefnt að því að blása til náttúruverndarfagnaðar og slá upp balli með tilheyrandi. Nánari dagskrá verður send út þegar nær dregur, en endilega takið frá daginn og kvöldið.
Dagskrá
10:00 Setning Náttúruverndarþings
10:10 Verndun og orkunýting landssvæða: næstu skref
Friðrik Dagur Arnarson, landfræðingur og fulltrúi náttúruverndarhreyfingarinnar í rammaáætlun 2
Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari og stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands
11:15 Málstofur og vinnuhópar:
Málstofa 1: Náttúruvernd og ferðaþjónusta
Innlegg: Arnar Már Ólafsson, markaðsstjóri hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum
Málstofustjórar: Rannveig Ólafsdóttir, dósent í ferðamálafræði og Anna G. Sverrisdóttir, stjórnarkona í Landvernd
Málstofa 2: Náttúruvernd og lýðræði
Innlegg: Kristinn Már Ársælsson, félagsfræðingur og stjórnarmaður í Öldu
Málstofustjóri: Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar
Málstofa 3: Náttúruvernd, friðlönd og þjóðgarðar
Innlegg: Helga Ögmundardóttir, mannfræðingur
Málstofustjóri: Einar Þorleifsson, náttúrulandfræðingur
12:45 Hádegisverður í Nauthóli
13:40 Afhending Náttúruverndarans, viðurkenningar fyrir ötula náttúruverndarbaráttu á Íslandi
13:50 Skipulag og samstarf náttúruverndarfélaga
Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur
Ósk Vilhjálmsdóttir, myndlistar- og leiðsögukona
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur
14:45 Ályktanir vinnuhópa
15:45 Kaffi
16:05 Kosning um ályktanir
16:20 Kosning í undirbúningsnefnd næsta þings
16:25 Þingslit
20:00 Náttúruverndarball með skemmtidagskrá á Sólon frá kl. 20:00. Aðgangur ókeypis.
Þingforsetar: Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri og Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor í heimspeki.
Verð á hádegismat er 1.990,-. Vinsamlegast skráið ykkur í mat fyrir 25. apríl á netfangið: skraning@landvernd.is.
Matseðill: Grilluð kjúklingabringa með mús úr sætum kartöflum, sítrónu- og spínatsósu og kryddjurtasalati með ristuðum hnetum og fræjum. Kaffi og konfektmoli á eftir. Vinsamlegast látið vita ef óskir eru um grænmetisfæði.
Ljósmynd: Frá Þeistereikjum, Sigmundur Einarsson.
Nánar um málstofur
Náttúruvernd og ferðaþjónusta
Erlendir ferðamenn voru rúmlega 560 þúsund árið 2011 og hefur árlega fjölgað að jafnaði um 5,3% á síðustu 10 árum. Sé miðað við áframhaldandi fjölgun með sama hraða verða hér um 900 þúsund erlendir ferðamenn árið 2020. Hvernig eru Íslendingar í stakk búin að taka á móti svo mörgu fólki án þess að það bitni á náttúrugæðum? Hvaða leiðir eru færar til að tryggja vernd sérstæðra svæða, sérlega á hálendi Íslands? Hvaða stefnu vilja umhverfis- og náttúruverndarsamtök taka í þessum málum? Málstofan mun leita svara við þessum spurningum og fleirum.
Náttúruvernd og lýðræði
Aðkoma almennings að ákvörðunum um umhverfismál, náttúruvernd og stórframkvæmdir er lítil hér á landi. Með hvaða hætti er hægt að auka vald almennings á þessu sviði? Veita sveitarstjórnarlög og skipulagslög almenningi nægileg áhrif? Hafa sveitarstjórnir of mikil völd á kostnað heildarhagsmuna í skipulags- og náttúruverndarmálum? Á almenningur að geta knúið fram íbúakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur um umdeild mál? Málstofan mun leita svara við þessum spurningum og fleirum.
Náttúruvernd, friðlönd og þjóðgarðar
Hvernig virkjum við betur hreyfingu náttúruverndarfélaga í hugmyndaríkri og framsækinni náttúruvernd?
- til öflugri náttúruverndar með alvöru friðlöndum
- fleiri þjóðgörðum
- meiri endurheimt náttúrugæða með virku eftirliti áhugafólks um náttúruvernd með friðun og friðlöndum
- alvöru eftirfylgni með skuldbindingum við alþjóðasáttmála í umhverfis- og náttúruvernd heima fyrir og á víðari grundvelli í umhverfi hnattrænna umhverfisvandamála.
Birt:
Tilvitnun:
Landvernd „Blásið til Náttúruverndarþings“, Náttúran.is: 26. apríl 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/21/blasid-til-natturuverndarthings/ [Skoðað:23. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. mars 2012
breytt: 26. apríl 2012