Vorboðar - Að læra að þekkja fugla
Á laugardaginn 17. maí kl 13:00 stendur Fuglaverndunarfélag Íslands og Sesseljuhús að fræðsluerindi og fuglaskoðun. Jóhann Óli Hilmarsson flytur stutt erindi og leiðir okkur inn í heim fuglaskoðunarinnar en síðan verður farið út og fuglar skoðaðir.
Þetta er tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. Aðgangur er ókeypis en munið að taka kíkinn með.
Myndin er af heiðlóu. Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson.
Birt:
14. maí 2008
Tilvitnun:
Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir „Vorboðar - Að læra að þekkja fugla“, Náttúran.is: 14. maí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/05/14/vorbooar-ao-laera-ao-thekkja-fugla/ [Skoðað:23. nóvember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.