Skítur inn og út:

Í gamansömum tón má segja að setning umhverfismarkmiða miðist við að mæla “skít inn og skít út”. Með því er átt að með því að mæla það sem við kaupum og hvað við látum frá okkur metum við sóun í fyrirtækinu. Því meiri sóun því meiri umhverfisspjöll og tengist það yfirleitt fjárhagslegum gildum einnig. Umhverfisviðmiðin fjalla yfirleitt um að gera meira úr minna sem einnig má kalla umhverfishagræði.

Flæði inn

Með flæði inn er til dæmis átt við eftirfarandi atriði:

  • Hráefnakaup og hráefnanýtingu í fullunninni vöru
  • Vatnsnotkun
  • Hitavatnsnotkun
  • Rafmagnsnotkun
  • Eldsneytisnotkun
  • Orkunotkun (eldsneyti, rafmagn og hitavatn slegið saman)
  • Efnanotkun
  • Pappírsnotkun
  • Innkaupakostnaður annarra vara í hlutfalli af veltu (gert ráð fyrir að hvorutveggja taki breytingum með verðbólgu)

Dæmi um umhverfismarkmið eru:

  • Hitavatnsnotkun á starfsmann eða á fermetra húsnæðis
  • Rafmagnsnotkun á starfsmann, fermetra húsnæðis, framleiddar einingar eða veltu
  • Eldsneytisnotkun á hvern ekinn kílómeter eða sem hlutfall af veltu
  • Pappírsnotkun í heild, sem hlutfall af veltu eða fjölda stöðugilda
  • Innkaupakostnaður sem hlutfall af heildarveltu.
  • Hlutfall umhverfismerktra vara af heildarinnkaupum
  • Ákveðið hlutfall farartækja eiga að eyða undir 7 dm3 á hundrað km
  • Efnanotkun á fermetra við hreingerningar að teknu tilliti til gólfbóns

Flæði út

Flæði út skiptist yfirleitt í mengun vatns eða sjávar, mengun andrúmslofts og úrgang. Hér getur verið um að ræða útblástur koltvísýrings í andrúmsloftið, svifryksmengun, brennisteinsmengun eða annan útblástur sem hægt er að rekja til starfseminnar. Algengast er að fyrirtæki meti hjá sér úrgang af þeirri einföldu ástæðu að það er yfirleitt auðvelt að meta þó það sé ekki það sé ekki alltaf mikilvægast.
Það er að verða algengara að fyrirtæki meti frekar koltvísýringsmengun en orkunotkun þar sem að endurnýjanlegir orkugjafar eins og metan og vetni, eru að verða aðgengilegri. Erlendis eru einnig ýmsir aðrir orkugjafar að verða meira áberandi eins og etanól, lífdísill, eldsneyti úr skógarafurðum, vindmillur o.s.fr.v. Svifryksmengun er hægt að hafa áhrif á með kaupum á réttum farartækjum og dekkjum. Úrgang er hægt að hafa áhrif á með flokkun en ekki síður með því að kaupa rétt inn þegar frá byrjun. Að kaupa inn rusl er ávísun á framtíðar förgun.

Dæmi um umhverfismarkmið um flæði út:

  • Útblástur koltvísýrings á hvern ekin km eða í hlutfalli af veltu.
  • Fjöldi metanbíla eða bifreiða á endurnýjanlegum orkugjöfum
  • Hlutfall úrgangs af heildarinnkaupum
  • Hlutfall óflokkaðs úrgangs
  • Hlutfall bifreiða með nagladekk eða á dekkjum sem eru án HA olía í slitfleti

Önnur markmið

Önnur markmið sem fyrirtæki setja sér tengjast of annarri starfsemi fyrirtækisins sem fyrirtæki geta haft áhrif á án þess að það snerti beint framleiðslu fyrirtækisins. Þessi markmið miðast oftast við að skapa aukna umhverfisvitund hjá starfmönnum fyrirtækisins eða forsendur fyrir starfsmenn til að vera umhverfisvænir. Hér er vert að taka fram að fyrirtækin oft skapa forsendur fyrir starfsmennina að vera umhverfisvænir í frítíma sínum. Þetta er meðal annars gert með að fyrirtækin setja á laggirnar verkefni sem starfsmenn síðan geta unnið að utan vinnutíma. Fyrirtæki geta meðal annars leyft starfsmönnum að sinna einu verkefni í einn vinnudag á ári sem er tengt gildum fyrirtækisins.

Dæmi um svona markmið eru:

  • Fjöldi starfsmanna sem hafa hlotið grunn umhverfismenntun eða kynningu
  • Fjöldi starfsmanna sem nýta sér almenningssamgöngur eða aka saman til vinnu (fyrirtæki geta t.d. styrkt starfsmenn með því að gefa græna kortið í Strætó)
  • Fjöldi starfsmanna sem flokka úrgang heima (eða eru með endurvinnslutunnu)
  • Fjöldi starfsmanna sem taka þátt í umhverfistengdum verkefnum sem vinnustaðurinn/vinnuveitandi styður.

Lokaorð
Hér að ofan hafa verið talin upp helstu atriði sem þarf að hugsa um þegar fyrirtæki setja sér markmið almennt og síðan talin upp hugsanleg umhverfismarkmið fyrir fyrirtæki. Markmiðin geta verið mjög mismunandi milli fyrirtækja og fer það allt eftir starfsemi fyrirtækisins. Þjónustufyrirtæki setja oft markmið tengt úrgangsmálum, starfsmönnum og eldsneytisnotkun meðan framleiðslufyrirtæki horfa meira á hráefni og orkunotkun. Það er sama um hvernig fyrirtæki er að ræða, allir geta sett sér markmið. Fyrsta skrefið að meta grunnstöðuna er mikilvægast. Þar kemur yfirleitt ýmislegt óvænt í ljós. Að setja sér umhverfismarkmið er ferill sem tekur nokkur ár. Fyrstu markmiðin er auðvelt að setja að því leiti að úr nægu er að velja. Samtímis eru þau erfið þar sem að oft vantar grunnstöðuna og það er lærdómsferill að finna og taka saman upplýsingar þannig að þær endurspegli markmiðin. Þessi lærdómsferill getur verið allt milli 12 og 36 mánuðir.

Grafík: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is

Birt:
4. desember 2013
Höfundur:
Finnur Sveinsson
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Finnur Sveinsson „Skítur inn og skítur út - umhverfisviðmið“, Náttúran.is: 4. desember 2013 URL: http://nature.is/d/2007/05/27/sktur-inn-og-sktur-t-umhverfisvimi/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 27. maí 2007
breytt: 4. desember 2013

Skilaboð: