Prentsmiðjan Svansprent hlaut á dögunum vottun norræna umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Svansprent er þriðja prentsmiðjan á Íslandi til að uppfylla strangar Svansins um lágmörkun á neikvæðum umhverfisáhrifum. Hinar prentsmiðjurnar eru Hjá Guðjón Ó og Prentsmiðjan Oddi.

Um Svansprent:

Prentsmiðjan Svansprent var stofnuð árið 1967 og á því langa sögu að baki. Stofnendur fyrirtækisins voru hjónin Jón Svan Sigurðsson og Þuríður Ólafsdóttir og  hefur fyrirtækið verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi. Starfar Jón Svan enn og því starfa þrír ættliðir hjá fyrirtækinu. Fyrstu sex árin var starfsemin í Skeifunni 3 en 1973 flutti fyrirtækið í eigið húsnæði að Auðbrekku 12 í Kópavogi. Fljótlega eftir flutninginn var byggt við húsnæðið, því umsvifin jukust jafnt og þétt.

Í fyrstu var einungis prentað á eina einlita prentvél og starfsliðið var fámennt en lengi vel störfuðu aðeins um 10 manns hjá fyrirtækinu. Í dag starfa um 30 manns hjá Svansprenti og hefur prentsmiðjan upp á að bjóða fullkominn tækjakost, bæði fyrir stafræna- og offsetprentun. Styrkur Svansprents hefur ætíð verið traust og gott starfsfólk með langan starfsaldur. Svansprent hefur lagt ríka áherslu á að veita viðskiptavinum sínum persónulega þjónustu, með sem fæstum milliliðum.
Kröfur Svansins fyrir prentsmiðjur miðast að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá öllu prentferlinu, allt frá uppruna hráefna til meðhöndlun úrgangs.

  • 95% efna til prentunar eða hreinsunar véla þurfa að vera umhverfismerktar eða sambærilegar
  • Ekki má nota efni sem eru hættuleg umhverfinu eða heilsu manna
  • Meðhöndlun efnaúrgangs þarf að vera ábyrg og almenn flokkun skýr
  • Mikil áhersla er lögð á að lágmarka úrgangsmyndum og afskurð
  • Í það minnsta 90% af þyngd Svansmerkts prentgrips skal vera umhverfismerktur pappír eða sambærilegur

Sjá viðmið Svansins fyrir prentverk.

Sjá þau fyrirtæki sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.

Sjá þá vöruflokka sem eru í boði af Svansvottuðum vörum hér á landi undir „Vörur/Vottað Svanurinn“ en í hverjum flokki finnur þú hvaða fyrirtæki flytja inn/dreifa viðkomandi vöruflokki og hvað vörurnar heita. Sé varan til nákvæmlega skráð til sölu eða kynningar er hana að finna í Svansbúðinni hér á Náttúrumarkaði. Samsvarandi flokkur er fyrir þjónustuflokkana undir „Þjónusta/Vottað Svanurinn“ hér á Grænum síðum.

Einnig er hægt að sjá gott yfirlit yfir aðilana hér á Græna Íslandskortinu í flokknum „Umhverfisvænar vörur“.

Birt:
28. nóvember 2010
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Svansprent fær Svansvottun“, Náttúran.is: 28. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/11/28/svansprent-faer-svansvottun/ [Skoðað:26. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: