Meistaranemar við umhverfis- og auðlindafræðideild Háskóla Íslands halda Græna daga í annað sinn dagana 2. – 6. mars nk. Markmið daganna er að vekja nemendur og starfsfólk skólans til vitundar um vistvæna neyslu og endurvinnslu.

Meðal dagskráliða er fatavelta á Háskólatorgi, þar sem menn geta komið með notuð föt og skipt þeim fyrir önnur sem verða á markaðinum, eða keypt notuð föt fyrir lítinn pening. Þrjár kvikmyndir verða sýndar, fyrirtæki í græna geiranum kynna sig og tvenn málþing verða haldin.

Náttúran.is og Land- og ferðamálafræðistofa HÍ munu kynna Græna Íslandskortið á Háskólatorgi þriðjudaginn 3. mars frá kl. 11:00-14:00.

Gaiu - félag meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum, Norræna húsið og Stofnun Sæmundar fróða starfa saman að Grænum dögum.

Birt:
18. febrúar 2009
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Grænir dagar í HÍ “, Náttúran.is: 18. febrúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/02/18/graenir-dagar-i-hi/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 6. mars 2009

Skilaboð: