Frysting matvæla við kjöraðstæður í frysti er góð leið til að stöðva örveruvöxt og minnka ensímvirkni lífrænna afurða. Geymsla í frysti getur þó aðeins verið tímabundin og er háð þvi að hitastiginu sé haldið jöfnu þ.e. -18oC út allan geymslutímann og að frágangi matvæla, hreinlæti og afhýðingu sé rétt staðið. Talað er um að ekki eigi að geyma mat lengur en í eitt ár í frysti, oft líka skemur. Við frystingu hægir nefnilega aðeins á niðurbrotsferlinu en það stöðvast ekki algerlega.

Á frystivörum í verslunum stendur jafnan hve lengi varan geymist en þegar um eigin framleiðslu er að ræða er ráðlegt að merkja á umbúðirnar hvenær maturinn er settur í frystinn. Maturinn missir eitthvað af næringargildi sínu við frystingu en það vegur upp á móti að fyrir stórar fjölskyldur og þá sem tækifæri hafa til að fá heilu eða hálfu skrokkana eða uppskera mikð magn matar, getur stór frystir verið brunnur sparnaðar.

Með því að smella á hluti í „Eldhúsinu“ nálgast þú upplýsingar sem snerta heilsu og umhverfi.

Birt:
26. ágúst 2010
Höfundur:
Náttúran
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran „Eldhúsið - Frysting matvæla“, Náttúran.is: 26. ágúst 2010 URL: http://nature.is/d/2009/07/30/frysting-matavaela/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 30. júlí 2009
breytt: 26. ágúst 2010

Skilaboð: