Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi í Fljótsdalshéraði hefur á undanförnum árum plantað um milljón trjám á landi sínu í Vallanesi, mikið af þeim stafafura [Pinus contora].

Allt sem Eymundur framleiðir hvort sem eru tré, kartöflur, bygg eða grænkál er ræktað með aðferðum lífrænnar ræktunar enda ber bú hans vottun frá vottunarstofunni Túni um 100% lífræna ræktun í Vallanesi. Bygg, olíur, grænmeti og tilbúnir réttir eru markaðssettir undir nafninu Móðir jörð og fást m.a. olíur og malað og heilt bygg frá Móður jörð hér á Náttúrumarkaðinum.

Nú er komið að annarri uppskeru nokkurra hundraða þessarar lífrænt ræktuðu stafafuru og munu þær vera á boðstólum dagana 19. til 23. desember á stéttinni fyrir utan verslunina Yggdrasil á Skólavörðustíg í Reykjavík, hjá Eymundi í Vallanesi og að Selási 11 á Egilsstöðum.

Sjá heilt bankabygg, byggmjöl, Birkiolíu, Blágresisolíu og Lífolíu hér á Náttúrumarkaðinum.

Sjá nýja vef Móður jarðar.

Myndin er af stafafurru [Pinus contora] í Reykholti. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
14. desember 2008
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lífrænt ræktuð íslensk jólatré frá Vallanesi“, Náttúran.is: 14. desember 2008 URL: http://nature.is/d/2008/12/09/lifraent-raektuo-islensk-jolatre-fra-vallanesi/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. desember 2008
breytt: 22. desember 2010

Skilaboð: