Bleikir kollar lambagrassins skreyta nú meli og móa. Þvílík fegurð!

Á floraislands.is segir svo um lambagrasið:
Lambagras
(Silene acaulis) er ein af algengustu jurtum landsins.  Það vex á melum, söndum og þurru graslendi.  Það vex jafnt á láglendi sem hátt til fjalla, víða í 1100-1200 m hæð á Tröllaskaga. Það hefur hæst fundist í 1440 m hæð á Hvannadalshrygg. Lambagrasið myndar sérkennilegar, ávalar þúfur með langri og sterkri stólparót niður úr. Það blómgast fremur snemma á vorin.

Ljósmynd: Lambagras, Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
29. júní 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lambagrasið í blóma“, Náttúran.is: 29. júní 2014 URL: http://nature.is/d/2009/06/09/lambagrasio-i-bloma/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. júní 2009
breytt: 29. júní 2014

Skilaboð: