Söfnun og meðferð villtra jurta
![]()
Aðalbláberjalyng [Vaccinium myrtillus]
Lýsing: Sumargrænn smárunni með ljósgrænum hvassstrendum greinum. Blöðin smásagtennt, ljósgræn, þunn og egglaga. Finnst aðallega á skjólgóðum stöðum í skóglendi, móum og hlíðarbollum þar sem snjóþyngst er. Síst á Suðurlandi.
Árstími: Júní
Tínsla: Takist með skærum eða stuttum hníf, einungis yngstu sprotar.
Meðferð: Þurrkað.
![]()
Beitilyng [Calluna vulgaris]
Lýsing: Kræklóttur smárunni, getur orðið þriggja áratuga gamall. Blöðin eru smá og krossgagnstæð. Blómin lítil í löngum klösum, greinaendar oftast blómlausir. Vex í mólendi og á heiðum. Algengt nema á NV-landi og miðhálendi.
Árstími: Nýblómgað í ágúst.
Tínsla: Tekið með skærum eða klippum. Einungis ný vaxnir sprotar.
Meðferð: Þurrkað, gjarnan í knippum.
![]()
Birki [Betula pubescens]
Árstími: Fyrri hluti júní eða seinni hluta ágúst. Ef birkilauf er tínt á miðju sumri er mikil hætta á að skordýr slæðist með.
Tínsla: Takist 5-10 cm sproti fremst af greinum, ný laufgað í júní eða ársproti seint í ágúst, notið trjáklippur. Tína ber frá skemmd lauf og möðkuð. Kvisturinn á að fylgja með blöðunum því í berkinum eru líka virk efni.
Meðferð:
Birki er ekki viðkvæmt í þurrkun, en nauðsynlegt er að dreifa vel úr því helst svo að lofti undir.
![]()
Bláberjalyng [Vaccinium uliginosum]
Lýsing: Sumargrænn smárunni, blöðin blágræn og egglaga. Algengt um allt land í kjarri, mólendi og mýrum.
Árstími: Maí-júní.
Tínsla: Yngstu sprotarnir takist með skærum eða stuttum hníf.
Meðferð: Þurrkað, gjarnan í knippum. Þolir þurrkun í sól.
![]()
Blágresi [Geranium sylvaticum]
Lýsing: Jurtin er fjölær vex upp af skriðulum jarðstöngli, 20-50 cm há. Blöðin eru stór handskipt, blómin oftast fjólublá. Finnst helst í skjóli við kjarr eða í hvömmum, lautum og snjódældum um allt land. Meðan jurtirnar eru óblómgaðar er hægt að villast á blágresi og sóley vegna handskiptu blaðanna. Flipar sóleyjarblaðanna skerðast dýpra og eru sepóttir enblöð blágresisins eru fremur tennt.
Árstími: Rétt fyrir blómgun og í blóma í júní-júlí.
Tínsla: Vegna lítillar rótar þarf að nota mjög beittan hníf svo jurtin upprætast ekki við tínslu. Best er að tína í gisinn poka og alls ekki troða í pokann. Blöðin mega ekki vera farin að roðna þegar þau eru tínd.
Meðferð: Blágresi má ekki þvo. Þurrka ber jurtina svo fljótt sem auðið er eftir tínslu. Blágresi er sérlega hætt við skemmd sé því pakka þétt, því það hitnar mjög fljótt í því vegna sterkra sýra sem það inniheldur. Þarf góða dreifingu og daglegan snúning við þurrkun. Góð loftræsting er nauðsynleg. Blöðin roðna í þurrkun ef þau eru skemmd. Gott er að þurrka blágresi í knippum, en þá má ekki setja nema 3-4 plöntur í hvert knippi.![]()
Blóðberg [Thymus praecox ssp. Arcticus]
Lýsing: Afar fíngerður jarðlægur smárunni sem blómstrar mikið, rauðbleikum eða blárauðum blómum, í júní. Algengt í mólendi, melum og sendnum jarðvegi um allt land.
Árstími: Blóðberg þarf að tína í júní, um það leyti sem blómgun er að hefjast. Blómgunin er fyrst á láglendi en síðar eftir því sem það vex hærra. Því má lengja tínslutímann nokkuð með því að færa sig af lægri svæðum af hálendari.
Tínsla: Takist með skærum eða stuttum og beittum hníf, forðist skemmdir á rótakerfi. Aðeins skulu teknar fíngerðustu greinar. Aldrei má klippa svo nærri að gamlar, grófar og trénaðar greinar fylgja með.
Meðferð: Grassstrá og annað slíkt er tínt frá. Þvegið úr ísköldu vatni.
Þurrkað inni. Vegna rokgjarnra olía í blóðbergi þarf að forðast hærra hitastig en 20-25 °C við þurrkun.
Ábendingar um ítarlegra efni:
Ágúst H. Bjarnason: Íslensk flóra með litmyndum, 1983.
Björn L. Jónsson: Íslenskar lækninga- og drykkjarjurtir, 1973.
Ingólfur Davíðsson: Ofurlítið um lækningajurtir, Garðyrkjuritið 1979.
![]()
Brenninetla (stórnetla og smánetla) [Urtica dioica og Urtica urens]
Lýsing: Stöngullinn uppréttur, ferstrendur. Blöðin langydd, hvassagtennt. Blómhnoðun í greinóttum öxum, hangandi. Vex sem illgresi kringum bæi. Smánetlan er minni, vex í fjörum og görðum og hefur minni kringlóttari blöð.
Árstími: Best nýsprottin.
Tínsla: Skorin eða slegin með ljá. Nauðsynlegt að nota hanska.
Meðferð: Þessum tveimur tegundum verður að halda hvorri fyrir sig, en báðar eru notaðar, smánetlan þó meira. Þurrkuð.
Gullmura [Potentilla crantzii]
Lýsing: Jurtin vex upp af jarðstöngli, nokkrir greindir stönglar vaxa venjulega saman upp af jarðstönglinum. Blöðin eru 3-5 fingruð, blómin minna á sóley, en hafa rauðgula bletti neðst.
Árstími: Rétt fyrir blómgun í júní-júlí
Tínsla: Klippt vel ofan við jörð.
Meðferð: Þurrkuð
![]()
Gulmaðra [Galium verum]
Lýsing: Upprétt, 15-50 cm há, vex upp af rauðum skriðulum jarðstöngli, blöðin striklaga í kransi, blómin gul, smá og þétt. Ilmar. Aðallega á þurru valllendi um allt land.
Árstími: Tekin í fullum blóma í júní-ágúst.
Tínsla: Klippt eða slegin
Meðferð: Þurrkuð, gjarnan í knippum. Vill molna í þurrkun og því gott ða hafa þéttan dúk undir. Notuð bæði í te og krydd.
Lýsing: Líkist baldursbrá, en hvítu blómin vantar í körfurnar. Vex sem slæðingur við híbýli og oft í miklu magni í gömlum kálgörðum.
Árstími: Tekin ný blómguð fyrri hluta kúlí.
Tínsla: Efri helmingur jurtarinnar er klipptur eða skorinn.
Meðferð: Forðast hærra hitastig við þurrkun en 20-25°C. Jurtin er vökvamikil og því seiný urrkuð. Þurrkun tekur 7-10 daga eða lengri tíma eftir aðstæðum. Blómin eru mikilvægasti hluti jurtarinnar í te. Best er að þurrka hlaðkollu á þéttum dúkum sem þó loftar gegnum. Hún vill molna mikið þegar hún þorrnar og ef notuð er grind eða strigi tapast mikið af jurtinni niður.
![]()
Holtasóley (rjúpnalauf) [Dryas octopetala}
Lýsing: Myndar flatar þúfur, stönglarnir trékenndir. Blöðin eru skinnkennd, sígræn, gljáandi, dökkgræn að ofan en silfurhvít og hærð að neðan. Blómin hvít, minna á sóley, en hafa 8 krónublöð. Algeng á melum og heiðum.
Árstími: Rjúpnalauf má taka allt sumarið, best í júní-júlí.
Tínsla: Klippið einungis nýja greinaenda til að fyrirbyggja upprætingu þar sem jurtin vex aðallega í gróðursnauðu og rþru landi, sem þolir illa að gengið sé nærri gróðri.
Meðferð: Þurrkun
![]()
Klóelfting [Equisetum arvense]
Lýsing
Gróstönglar eru ljósleitir eða svartir, blaðlausir og liðskiptir, svokallaðir skollafætur. Gróaxið situr efst. Þeir eru ekki nýttir. Grólausu stönglarnir verða 20-40 cm háir grænir með uppvísandi greinakrans á hverjum lið, greinarnar þrístrendar.
Algengt um allt land, vex víða í þéttbýli og því er ástæða til að minna á að forðast staði þar sem notað hefur verið skordýraeitur og tilbúinn áburður.
Árstími: Júlí.
Tínsla: Sumarjurtin takist með sigð eða grasklippum.
Meðferð: Eins og við þurrkun blágresis þarf að gæta vel að loftræstingu og snúningi. Elfting skemmist fljótt ef hún liggur þétt, enda hefur hún verið talin með bestu safnhaugsplöntum. Þornar hægt.
![]()
Kúmen [Carum carvi]
Lýsing: Tvíær jurt með greinóttum stöngli og ljósgrænum tví- til þrífjaðurskiptum blöðum. Blöðin minna á baldursbrá, en bleðlarnir eru breiðari og ekki eins þráðlaga. Blómin hvít og mjög smá. Algeng sunnanlands, en aðeins á ræktuðu landi í öðrum landshlutum. Ólíklegt er að söfnun skili tekjum í samræmi við vinnu.
Árstími: Júlí-Ágúst
Meðferð: Fræið er tekið þegar það er fullþroskað. Þurrkað í bökkum.
Lerki [Larix spp.]
Lýsing: Sumargrænn barrviður. Lerki vex ekki villt á Íslandi. Þar sem það er að finna hefur því verið plantað og er ekki ætlast til að aðrir snerti við því en eigendur.
Árstími: Ágúst.
Tínsla: Um 5-10 cm teknir framan af greinaendum. Barrið er það sem sóst er eftir, en kvisturinn má fylgja með. Notað við matreiðslu, en markaður er lítill svo ráðlegt er að fara hægt í sakirnar.
Meðferð: Þurrkað.
![]()
Ljónslappi [Alchemilla alpina]
Lýsing: Margir blómstönglar upp af marggreindum jarðstöngli. Blöðin 5-7 fingruð. Hæð 5-30 cm. Algengar um allt land á melum og í skriðum.
Ljónslappi hefur lengi verið talinn með bestu te- og lækningajurtum.
Árstími: Júní-júlí. Í blóma eða eftir blómstrun.
Tínsla: Skorinn rétt ofan rótar.
Meðferð: Þurrkun.
![]()
Lokasjóður (peningagras) [Rhinanthus minor]
Lýsing: Lokasjóður er af grímublómaætt. Stöngullinn uppréttur með gagnstæðum stilklausum blöðum. Aldinn kringlótt, dökkbrún og gljáandi. Lokasjóður er að hluta til sníkjuplanta, rætur hans vaxa inn í rætur annarra jurta og draga næringu frá þeim. Vex aðallega í hálfröku valllendi.
Árstími: Júlí-ágúst
Tínsla: Skerist þegar fræið er fullþroskað og guli liturinn farinn af blóminu. Gæta ber að viðkvæmum rótum.
Meðferð: Þurrkun.
![]()
Lyfjagras [Pinguicula vulgaris]
Lýsing: Blöðin safamikil og breiðast út fast niður við jörðina. Upp úr blaðhvilfingunni miðri vaxa 5-10 cm langir blaðlausir blómleggir og bera eitt lotið blóm efst. Jurtin nærist að hluta á skordýrum sem festast við blöðin.Vex í rökum jarðvegi um allt land.
Árstími: Fyrir blómgun í júní.
Tínsla: Jurtin skorin frá rótinni.
Meðferð: Þurrkun.![]()
Maríustakkur [Alchemilla vulgaris]
Lýsing: Blöðin handstrengjótt og sepótt, blómin græn eða gulgræn á grönnum blómleggjum. Hæð 15-40 cm. Algengt um allt land.
Árstími: Júní-júlí.
Tínsla: Skerist 5-10 cm frá rót.
Meðferð: Þurrkun
![]()
Mjaðurt [Filipendula ulmaria]
Lýsing: Uppréttur stöngull, blöðin stór, samsett, dökkgræn á efra borði en grálóhærð að neðan. Blómin smá, mörg saman í stórum skúfum. Rósaætt. Algeng í rökum jarðvegi einkum á Suður- og Vesturlandi.
Árstími: Júlí
Tínsla: Takist fullsprottin og ný blómguð, áður en stöngull verður verulega trénaður. Notið sigð eða ljá og skerið stöngulinn 15-20 sm ofan við rót.
Meðferð: Þurrkast best upphengd í litlum knippum.
![]()
Sortulyng [Arctostaphylos uva-ursi]
Lýsing: Sígrænn jarðlægur runni með þykkum gljáandi blöðum. Blöðin eru öfugegglaga og heilrennd. Blómin fá saman á greinaendum. Algeng um allt land í kjarri og mólendi.
Árstími: Sortulyng er hægt að taka næstum allt árið er best að taka það yfir sumarmánuðina, júní-ágúst.
Tínsla: Klippið fremsta hluta nýrra greina með ungum blöðum.
Meðferð: Þarf langan tíma í þurrkun, þar sem lyngið heldur raka mjög lengi. Þolir að þorna í sólskini, þótt það sé ekki talið æskilegt.
![]()
Tágamura (silfurmura) [Potentilla anserina]
Lýsing: Murutágarnar eru langir jarðlægir stönglar sem kjóta rótum með löngu millibili og vex upp af þeim blaðhvirfing. Blöðin stilksturr stakfjöðruð, silfurhærð á neðra borði eða báðum megin. Rósaætt. Vex í sendnum jarðvegi, oft efst í fjöru.
Árstími: Júlí-ágúst
Tínsla: Varast að rekja upp jarðlægan stöngulinn, eingöngu blöðin eru nýtt. Afbrigði af tágamuru eru misjafnlega silfurhæð og er fremur sóst eftir þeim silfurhærðu.
Túnfíflar [Taraxacum spp.]
Lýsing: Algengir um allt land, mest á láglendi, og afar auðþekktir. Blómin stórar gular körfur efst á víðum holum legg og hvirfing af fagurgrænum flipóttum blöðum í kring. Allur fífillinn er nýtanlegur til matar. Blöðin má nóta í salötm eða gera af þeim seyði, blómin má steikja eða gera af þeim vín. Hér verður aðeins fjallað um ræturnar.
Árstími: Maí eða september-október.
Tínsla: Túnfíflar vaxa oft í miklu magni í þéttbýli. Þótt þeir séu aðgengilegir þar er jafn óheppilegt að taka þá nálægt mannabústöðum og aðrar jurtir vegna hættu á að þeir séu mengaðir af skordýraeitri, bifreiðaútblæstri og fleiru.
Rót fífilsins er löng stólparót og er efsti hluti hennar tiltölulega sver, eða um 5-10 mm í þvermál. Rótina þarf að stinga upp með löngu hnífsblaði, eða grannri skóflu. Ræturnar eru seigar að slíta og því auðveldara að skera rótina sundur um 10 cm niðri í moldinni með áhaldinu sem notað er. Til þess að skilja ekki eftir sár í jarðveginum nægir að þrýsta með fætinum að holunni, sárið lokast á fáum dögum.
Meðferð: Blöð og stöngull eru skorin frá rótinni. Stök rótarhár slitin burtu og ræturnar þvegnar í köldu rennandi vatni. Stórar rætur er gott að kljúfa.
Þurrkast best hengdar á þráð, á það við um flestar rætur.
![]()
Vallhumall [Achillea millefolium]
Lýsing: Jurtin er 10-50 cm há. Efst á stönglinum sitja blómin, margar körfur saman og mynda þéttan koll. Stöngullinn er seigur, hærður og á honum sitja stakstæð fín-fjaðurskipt blöð. Blómin oftast hvít, stundum bleik eða rauð. Algengur um allt land í þurrum jarðvegi.
Árstími: Takist áður en stöngullinn trénar. Júlí-ágúst. Vallhumall er bestur ef aðeins eru tekin blöðn sem vaxa snemma vors, áður en blómstilkur myndast. Það er þó miklu seinlegra og skilar sér ekki í verði.
Tínsla: Víða hægt að beita ljá við vallhumal-töku. Hafi fólk tilhneigingu til ofnæmis í slímhúð nefs, þarf það að forðast ryk af þurrkaðri jurtinni. Einnig er algengt að jurtin valdi húðkláða við snertingu, vísast er því að nota hanska við söfnun hennar.
Meðferð: Þurrkun.
![]()
Ætihvönn [Angelica archangelica]
Lýsing: Ætihvönnin er stórgerð og hávaxin, stundum mannhæðar há. Hún safnar næringu í rót nokkur ár áður en hún blómgast. Rætur eru stungnar undan jurtum sem ekki hafa blómgast enn. Algengust nálægt sjó, við læki, í hlíðarhvömmum inn til landsins og í gömlum kálgörðum. Geithvönn er svipuð ætihvönn tilsýndar, en algerlega óæt. Endasmáblað ætihvannar er þrískipt og gulhvít blómin mynda litla sveipi sem raðast í nærri kúlulaga þyrpingar, stórsveipi. Mikill ilmur er af öllum hlutum ætihvannar.
Árstími: Hvannafræ eru tekin í júlí-ágúst. Hvannarætur í maí eða september-október.
Tínsla: Fullþroskaðir “fræhausar” skornir af áður en fræið þornar. Ef nota á blöð eða stöngul er hvönnin skorin fyrir blómstrun.
Rótin er tekin með stunguskóflu að vori áður en vex upp af henni, eða að hausti eftir að plantan er fallin.
Meðferð: Fræ eru þurrkuð í bökkum. Þeim er mjög hætt við að mygla og því þarf góða loftræstingu og mikið að hreifa þau. Gott að þurrla þau á fræhausnum, fræið hrynur þegar það þornar.
Rætur eru hreinsaðar, skornar að endilöngu og þræddar á band. Þorna hangandi.
Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Erlingur Filippusson „Söfnun og meðferð villtra jurta“, Náttúran.is: 11. september 2011 URL: http://nature.is/d/2008/05/31/sofnun-og-meofero-nokkurra-villtra-jurta/ [Skoðað:29. október 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 31. maí 2008
breytt: 6. maí 2012

