kælivara eldhúsborð eldhúsborð vaskur blóm vefnaðarvörur frystir ísskápur uppþvottur bakaraofn og vifta bökunarofn og vifta hreinlætisvörur blöndunartæki rafmagnsinnstunga matvinnsluvél kryddhilla eldhúsinnrétting brauð pottar og pönnur þurrvara kaffi & te matreiðslubók eldhúsið Hlutverk eldavéla er að hita mat. Sá hluti orkunnar, sem því miður er stór, sem ekki hitar matinn, hitar andrúmsloftið og það er orkusóun. Að lofta eldhús vegna hita er eitt einkenni þessarar orkusóunar. Því skal hafa eftirfarandi í huga þegar eldað er:
  • Setja skal lok á pottana til þess að hitinn gufi ekki upp. Bara þetta minnkar orkunotkunina um 1/3.
  • Nota skal minnsta pottinn og minnstu helluna.
  • Velja skal flatbotna pönnur sem snerta helluna allan hringinn.
  • Ekki borgar sig að sjóða matinn meira en nauðsyn krefur og slökkva skal á hellunni nokkrum mínútum áður en suðu lýkur.
  • Best er að slökkva á viftunni ef hún er ekki í notkun.

Þegar þú fjárfestir í eldavél borgar sig til lengri tíma litið að kaupa tæki sem er á skala A, A+ eða A++ Evrópska orkumerkisins eða er merkt orkunotkun á annan sambærilegan hátt, t.d. Energy Star. Þessir ofnar eru betur einangraðir og nota 20% minni orku en aðrir ofnar. Aðeins 6% af orkunni í bökunarofninum fer í að hita upp matinn. Afgangurinn fer í að hita upp mörg kíló af stáli og lofti inni í ofninum. Best er að kaupa ofn sem hreinsar sig sjálfur. Blástursofnar eru einnig betri en venjulegir ofnar þegar blásturinn er hafður á.

Elhústæki eru því miður komin í hóp tískuvara og margir skipta um eldhúsinnréttingar og tækin með á nokkurra ára fresti. Þar er gríðarlega neikvæð þróun út frá umhverfissjónarmiði.

Hafa skal eftirfarandi í huga:

  • Best er að nota blásturinn í blástursofninum.
  • Betra er að baka meira en einn hlut í ofninum á sama tíma.
  • Kjöthitamælir segir nákvæmlega fyrir um hvenær kjötið er tilbúið, sé hann notaður.
  • Best er að nota sjálfhreinsunina í ofninum strax eftir bakstur.
  • Best er að slökkva á ofninum nokkru áður en bökunartíminn rennur út og láta afgangshitann vinna verkið.

Með því að smella á aðra hluti á myndinni af eldhúsinu hér að ofan birtast upplýsingar um þá.

Birt:
6. ágúst 2011
Höfundur:
Náttúran er
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran er „Svona sparar þú orku í eldhúsinu - Eldavélin“, Náttúran.is: 6. ágúst 2011 URL: http://nature.is/d/2008/02/13/svona-sparar-thu-orku-i-eldhusinu-eldavelin/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 13. febrúar 2008
breytt: 7. ágúst 2011

Skilaboð: