Plastpokabann verður innleitt á Hawai
Ímyndið ykkur framtíðina án plastpoka í öllum skápum og skúffum heimilisins þar sem litlu plastikpokahaldararnir inni í eldhússkápnum ná aldrei að halda utan um allan þann fjölda plastpoka sem læðast inn á heimilið úr búðinni.
Sú framtíð er ekki langt undan á Hawai þar sem öll fjögur byggðu sveitarfélög landsins hafa samþykkt plastpokabann í kjörbúðum en bannið mun taka gildi þann 17. janúar nk.
Viðskiptavinir geta fengið keypta bréfpoka í verslunum eða tekið með sér fjölnotainnkaupapoka að heiman.
Nálægðin við sjóinn hefur haft sitt að segja með að gera fljúgandi plastpoka sýnilegri á Hawai og vandamálin sem fylgja plastrusli í sjónum og áhrif þess á lífríkið eru greinilegu þorra íbúa landsins.
Það voru umhverfissamtök sem komu hugmyndinni áfram og fylgdu henni eftir inn á borð svetiarstjórnanna.
En þetta er einungis fyrsta skrefið. Næsta skref verður að hætta sölu bréfpoka i verslunum og hvetja neytendur þannig til að taka ábyrgð og nota fjölnota innkaupapoka í öllum innkaupferðum sínum.
Birt:
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Plastpokabann verður innleitt á Hawai“, Náttúran.is: 9. janúar 2014 URL: http://nature.is/d/2014/01/09/plastpokabann-verdur-innleitt-hawai/ [Skoðað:21. desember 2024]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 19. febrúar 2015