Eftir 10. október nk. verða gráar og grænar tunnur sem innihalda pappír eða pappa ekki tæmdar í Reykjavík. Allur pappír og pappi á að fara í bláu tunnuna, sem Reykjavíkurborg hefur hvatt borgarbúa til að fá sér eða þá koma honum í bláa grenndargáma sem staðsettir eru út um allan bæ, eða í pappírsgámana á gámastöðvunum

Ef pappír finnst í röngum tunnum verður settur miði á tunnuna og sagt að of mikill pappír hafi verið í tunnunni og því hafi tunnan ekki verið losuð.

Nánari upplýsingar um breytta sorphirðu má finna á síðunni pappírerekkirusl.is.

Á Endurvinnslukors-appinu má nálgast upplýsingar um hvar tekið er á móti pappír til endurvinnslu á öllu landinu. Náðu þér í appið ókeypis!

Birt:
25. september 2013
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Tunna með pappír verður ekki tæmd“, Náttúran.is: 25. september 2013 URL: http://nature.is/d/2013/09/25/tunna-med-pappir-verdur-ekki-taemd/ [Skoðað:21. desember 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: