Náttúran birtir nú fimmta sáðalmanak ársins 2013. Guðfinnur Jakobsson lífrænn bóndi í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún fékkst við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

1.     00 – 13 blóm, 14 – 24 blað
2.     00 – 24 blað
3.     00 – 12 blað, 13 – 21 blóm
4.     00 – 13 blað, 14 – 24 ávextir
5.     00 – 21 ávextir
6.     04 – 13 ávextir, 16 – 24 rót
7.     00 – 04 rót, 05 – 15 blóm, 16 – 24 ávextir
8.     00 – 24 rót
9.     00 – 11 rót, 12 – 24 blóm
10.   00 – 24 blóm
11.   00 – 22 blóm
12.   00 – 24 blað
13.   00 – 10 blað, 17 – 24 ávextir
14.   00 – 24 ávextir
15.   00 – 24 ávextir
16.   00 – 12 ávextir, 13 – 24 rót
17.   00 – 16 rót, 16 – 24 óhagstætt
18.   00 – 24 óhagstætt
19.   05 – 14 og 18 – 21 rót, 22 – 24 blóm
20.   00 – 05 og 13 – 24 blóm
21.   00 – 03 blóm, 04 – 24 blað
22.   00 – 22 blað
23.   óhagstætt
24.   03 -24 ávextir
25.   00- 04 ávextir, 05 – 24 rót
26.   00 – 11 rót, 12 – 21 blóm, 22 – 24 rót
27.   02 – 24 blóm
28.   00 – 20 blóm, 21 – 24 blað
29.   00 – 24 blað
30.   00 – 24 blað

Hagstætt tímabil til útplöntunar er frá 9. til 22. júní.
Hagstætt tímabil til jurtasöfnunar er 1. til 8. og 23, til 30. júní.
Sem dæmi væri hagstætt að safna birkilaufi fyrri hluta dags dagana 2., 3., 12., 13. og 21. og 22. júní.

Sé af einhverjum ástæðum, t.d. vegna veðurs ekki hægt að planta út á því tímabili sem æskilegast er, þá má bæta úr því með því að losa/raka yfirborð jarðvegsins, eða hreykja að jurtunum næst þegar hagstætt tímabil er.

Sáðalmanak hvers dags birtist nú einnig á Viðburðardagatalinu hér til hægri á síðunni.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

•    Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar
•    Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál
•    Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkólí
•    Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn
Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Eldhúsgarðurinn byrjar í huganum, Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Birt:
26. maí 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sáðalmanak fyrir júní 2013“, Náttúran.is: 26. maí 2013 URL: http://nature.is/d/2013/05/26/sadalmanak-fyrir-juni-2013/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: