Laugardaginn þ. 25. maí verða haldnar.m.k. 330 göngur í 41 löndum til að mótmælum ægivaldi Monsanto í heiminum.

Undirbúningsfundur fyrir göngu hér á landi verður haldinn í kaffihúsinu Stofunni við Ingólfstorg, þriðjudaginn 21. maí kl. 17:30.

Monsanto risinn er eins og flestir vita leiðandi í þróun erfðabreyttra fræja og svífst einskis til að auðgast. Monsanto komst á legg með því að framleiða Agent Orange sem Bandaríkjamenn notuðu í Víetnam stríðinu. Afrekalisti Monsanto er langur og dökkur (sjá nánar á Wikipediu).

Þeir sem styðja ekki heimsyfirráðastefnu Monsanto geta byrjað með því að forðast að styrkja fyrirtækið með því að sniðganga eftirfarandi fræ vörumerki*:

  • Asgrow
  • Channel
  • Dekalb
  • Deltapine
  • Fielders's Choice
  • Fertranelle
  • Gold Country Seed
  • Hubner Seed
  • Jung Seed Genetic
  • Kruger Seeds
  • Lewis Hybrids
  • Rea Hybrids
  • Specialty
  • Stewart
  • Stone Seed Group
  • Trelay Seeds
  • WestBred
  • De Ruiter
  • Seminis

Sjá Facebooksíðu MarchAgainstMonsantoiceland

Sjá Facebooksíðu MarchAgainstMonsanto

Birt:
20. maí 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Göngum gegn Monsanto“, Náttúran.is: 20. maí 2013 URL: http://nature.is/d/2013/05/20/gongum-gegn-monsanto/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: