Í boði náttúrunnar og Lífrænt ÍslandskortTímaritið Í boði náttúrunnar kom út í byrjun mars með nýju útliti og ríkulegu innihaldi. Blaðið er að þessu sinni tileinkað handverki og heilsu. Fjallað er um heilann og afkastagetu hans, baunaspírur og morgunvenjur, sparperur og stjörnuskoðun, svo fátt eitt sé nefnt.

Blaðið er að vanda listrænt og fallegt með eindæmum. Áskrifendur blaðsins fengu Lífrænt Íslandskort Náttúrunnar sent með eintaki sínu.

Nú stendur Í boði náttúrunnar fyrir kynningarátaki og gefur öllum kost á að skoða allt blaðið ókeypis í rafrænni útgáfu til 22. apríl nk.

Smelltu hér til að skoða nýjasta tölublað Í boði náttúrunnar.

Birt:
15. apríl 2013
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Í boði náttúrunnar - frítt til 22. apríl“, Náttúran.is: 15. apríl 2013 URL: http://nature.is/d/2013/04/15/i-bodi-natturunnar-fritt-til-22-april/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: