Loftslagsmál eru ein af stærstu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Fyrirtæki gegna þar mikilvægu hlutverki annars vegar með því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sinni og hins vegar að þróa vörur og þjónustu þannig að aðrir nái árangri.

Áskoranir fyrirtækja verða ræddar á opnum morgunverðarfundi Samtaka iðnaðarins og CleanTech Iceland 27. janúar kl. 8.30 – 10.30 á Hilton Reykjavík Nordica.

Dagskrá:

  • Tækifæri til atvinnusköpunar - Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður framleiðslu- og matvælasviðs hjá SI
  • Learnings from COP21 - KC Tran, framkvæmdastjóri Carbon Recycling International
  • Tæknilausnir í bátum - Högni Bergþórsson, tæknilegur framkvæmdastjóri hjá Trefjum
  • Vöktun og mælingar - Þorsteinn Svanur Jónsson, viðskipta- og þróunarstjóri ARK Technology
  • Vistvænar byggingar - Nanna Karólína Pétursdóttir, byggingatæknifræðingur Verkís
  • Úrgangur og endurvinnsla - Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar

Fundarstjóri : Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Skráning hér.


Birt:
25. janúar 2016
Tilvitnun:
Samtök iðnaðarins „Áskoranir í loftslagsmálum – Morgunverðarfundur“, Náttúran.is: 25. janúar 2016 URL: http://nature.is/d/2016/01/25/askoranir-i-loftslagsmalum-morgunverdarfundur/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: