Þröstur Eysteinsson skipaður í embætti skógræktarstjóra

Þröstur var annar tveggja umsækjenda sem hæfnisnefnd mat hæfastan til að gegna embættinu. Hann lauk doktorsprófi í skógarauðlindum frá háskólanum í Maine í Bandaríkjunum og meistaragráðu í skógfræði frá sama skóla. Áður en hann tók við stöðu sviðsstjóra Þjóðskóganna starfaði hann sem fagmálastjóri Skógræktar ríkisins og þar á undan sem sérfræðingur hjá rannsóknarstöð sömu stofnunar sem og héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins á Húsavík.
Þá hefur Þröstur skrifað fjölda ritrýndra fræðigreina um skógrækt og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sviði skógræktar.
Þröstur er skipaður í embætti skógræktarstjóra frá 1. janúar næstkomandi og er honum m.a. falið að fylgja eftir nýlegum tillögum starfshóps um sameiningu skógræktarstarfs ríkisins í eina stofnun.
Þröstur er kvæntur Sherry Curl og eiga þau tvö uppkomin börn.
Birt:
Tilvitnun:
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir „Þröstur Eysteinsson skipaður í embætti skógræktarstjóra“, Náttúran.is: 14. desember 2015 URL: http://nature.is/d/2015/12/14/throstur-eysteinsson-skipadur-i-embaetti-skograekt/ [Skoðað:1. apríl 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.