Fura með köngla og snjó. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Skógræktarfélög víða um land selja líka jólatré núna fyrir jólin. Þau félög sem verða með jólatrjáasölu næstu helgi (12.-13. desember) eru:

  • Skógræktarfélag Akraness er með jólatrjáasölu í Slögu sunnudaginn 13. desember kl. 12-15. Sjá nánar á heimasíðu félagsins – www.skog.is/akranes
  • Skógræktarfélag Austurlands er með jólatrjáasölu í Eyjólfsstaðaskógi sunnudaginn 13. desember kl. 12-15.
  • Skógræktarfélag Árnesinga er með jólatrjáasölu á Snæfoksstöðum helgina 12.-13. desember kl. 11-16.
  • Skógræktarfélag Borgarfjarðar er með jólatrjáasölu í Reykholti sunnudaginn 13. desember kl. 11-15 og í Grafarkoti sama dag kl. 11-15, í samstarfi við Björgunarsveitina Heiðar.
  • Skógræktarfélag Dýrafjarðar er með jólatrjáasölu á Söndum laugardaginn 12. desember kl. 13-15.
  • Skógræktarfélag Garðabæjar er með jólatrjáasölu í Smalaholti laugardaginn 12. desember kl. 12-16. Sjá nánar á heimasíðu félagsins - http://www.skoggb.is/
  • Skógræktarfélag Hafnarfjarðar er með jólatrjáa- og skreytingasölu í Þöll við Kaldárselsveg helgina 12.-13. desember, kl. 10-18.
  • Skógræktarfélag Ísafjarðar er með jólatrjáasölu í teig ofan Bræðratungu laugardaginn 12. desember kl. 13-15.
  • Jólatrjáasala Skógræktarfélags Mosfellsbæjar opnar 10. desember og verður opin alla daga fram á Þorláksmessu, kl. 12-17 virka daga og kl. 10-16 um helgar. Sjá nánar á heimasíðu félagsins - http://www.internet.is/skogmos/
  • Skógræktarfélag Reykjavíkur er með jólatrjáasölu á Jólamarkaðinum á Elliðavatni og í jólaskóginum á Hólmsheiði helgina 12.-13. desember. Sjá nánar á heimasíðu félagsins - http://heidmork.is/
  • Fossá í Hvalfirði – Skógræktarfélög Kópavogs, Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósarhrepps eru með jólatrjáasölu á Fossá í Hvalfirði helgina 12.-13. desember kl. 10-16.

Nánari upplýsingar á jólatrjáavef skógræktarfélaganna á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands – www.skog.is/jolatre.

 

Birt:
9. desember 2015
Tilvitnun:
Skógræktarfélag Íslands „Jólatréssala skógræktarfélaganna helgina 12. - 13. desember “, Náttúran.is: 9. desember 2015 URL: http://nature.is/d/2015/12/09/jolatressala-skograektarfelaganna-helgina-12-13-de/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: