Krabbafundur. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Miðvikudaginn 14. október frá 9:30-11:00 verður haldinn samfráðsfundur um stefnu SFS í menntun til sjálfbærni í Frístundamiðstöðinni í Gufunesi.

Helena W. Óladóttir verður með stutta kynningu á fyrirhugaðri stefnumörkun.
Heimskaffi þar sem þátttakendum gefst kostur á að leggja sitt af mörkum við mótun stefnunnar.

Sjálfbærni er einn af sex grunnþáttum í menntastefnu þjóðarinnar. Leiðarljós menntunar til sjálfbærni er að hvetja einstaklinginn til að taka afstöðu, bregðast við og vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Sumir vilja orða það svo, að megininntak menntunar til sjálfbærni sé sameiginleg ábyrgð okkar á velferð einstaklingsins, samfélagsins og umhverfisins.

Boðaður fundur er sá síðari af tveimur sem haldnir verða í haust í þessum tilgangi en markmið þeirra er að kalla eftir hugmyndum, tillögum og væntingum þátttakenda inn í stefnumörkunina. Sjá frétt um fyrri fundinn hér.

Hlutverk ofangreinds starfshóps er að móta stefnu sviðsins í menntun til sjálfbærni í leikskólum, grunnskólum, félagsmiðstöðvum, frístundaheimilum, frístundaklúbbum og skólahljómsveitum. Hópurinn vinnur í samræmi við fyrirmæli aðalnámskráa leikskóla og grunnskóla, starfsskrár frístundamiðstöðva, stefnu um skóla án aðgreiningar og aðrar stefnur Reykjavíkurborgar sem snerta umfjöllunarefnið.

Sjá viðburðinn á Facebook.


Birt:
12. október 2015
Höfundur:
Helena Óladóttir
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Helena Óladóttir „Samráðsfundur um stefnu í menntun til sjálfbærni“, Náttúran.is: 12. október 2015 URL: http://nature.is/d/2015/10/12/samradsfundur-um-stefnu-i-menntun-til-sjalfbaerni/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: