Vegagerðin kemur sér undan mati á umhverfisáhrifum og Skipulagsstofnun veitir ekki nægilegt aðhald

Kindur á Kjalvegi. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.
Frá árinu 1995 hefur Vegagerðin unnið að breytingum á rúmlega 40 km kafla Kjalvegar, allt frá Gullfossi að Árbúðum, norðan Hvítár, í misstórum áföngum. Um er að ræða uppbyggðan veg sem víða er utan eldra vegstæðis. Vegagerðin hefur ekki látið fara fram mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Að undangengnum ábendingum Landverndar og fleiri óskaði Vegagerðin í sumar eftir afstöðu Skipulagsstofnunar til þess hvort umhverfismeta skyldi þá 3 km sem eftir eru af vegarlagningunni að Árbúðum.
Með því að búta vegaframkvæmdirnar upp í áfanga gerist Vegagerðin sek um að beita alþekktri aðferð, s.k. „salami slicing“ eða „pylsuskurði“, til þess að skjóta sér undan mati á umhverfisáhrifum, þar sem hver framkvæmdakafli er ekki lengri en svo að ekki er skylt að umhverfismeta hann. Landvernd mótmælir þessum vinnubrögðum harðlega og bendir á í kæru sinni að „pylsuskurður“ Vegagerðarinnar standist ekki löggjöfina um umhverfismat. Um það vitni Evrópudómstólinn en hann hefur margdæmt það óheimilt að fara í kringum markmið umhverfismatslaga með því að skipta framkvæmd upp með þessum hætti.
Landvernd gagnrýnir ákvörðun Skipulagsstofnunar og aðhaldsleysi í málinu harðlega og telur óhjákvæmilegt að ákvörðunin verði ógilt. Stofnuninni beri að líta til dómaframkvæmdar Evrópudómstólsins og láta heildarframkvæmdina lúta mati á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun hafi ekkert hugað að heildaráhrifum umræddra vegbreytinga, t.d. ekkert að því, hver heildaráhrifin yrðu af breyttum, uppbyggðum vegi á hálendisumferð, ásókn inn á hálendið og upplifun útivistarfólks og annarra ferðamanna, áhrif á víðerni og á þolmörk náttúrunnar. Þá gáði stofnunin ekkert að því, hver samlegðaráhrif kynnu að verða af breyttum vegi og uppbyggingaráformum í gistingu í hálendismiðstöðinni í Kerlingarfjöllum sem stofnunin þó hafði til meðferðar á sama tíma. Landvernd lítur sérstaklega til þess að um er að ræða framkvæmdir á hálendi Íslands sem er ein viðkvæmasta og verðmætasta náttúruperla landsins.
Birt:
29. september 2015
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „Vegagerðin kemur sér undan mati á umhverfisáhrifum og Skipulagsstofnun veitir ekki nægilegt aðhald“, Náttúran.is: 29. september 2015 URL: http://nature.is/d/2015/09/29/vegagerdin-kemur-ser-undan-mati-umhverfisahrifum-o/ [Skoðað:15. júlí 2025]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.